Námskeið í boði hjá Fáki

  • 9. maí 2011
  • Fréttir
Námskeið í boði hjá Fáki

Fræðslunefnd Fáks auglýsir aftur námskeið í neyðarjárningu og undirbúningi fyrir gæðingakeppni:

Stefnir þú á Landsmót?   

Fræðsunefnd Fáks auglýsir undirbúning fyrir gæðingakeppni, með umsögn leiðbeinanda og  dómara fyrir 18 ára og eldri.
Gert er ráð fyrir að þátttakendur mæti með sinn keppnishest og ríði prógrammið í gæðingakeppni . Þátttakendur fá leiðsögn um það sem vel er gert og það sem betur má fara. Dómari gefur  þátttakanda  einkunn og þeir fá skriflega umsögn. Í boði er að kaupa sér  1, 2  eða 3 skipti.  Gert er ráð fyrir að hver þátttakandi  fái 15 mínútur.  Dagsetningar eru  10.maí kl. 17:00 -19:00, 11.maí  kl.19:00-21:00 og 12.maí  frá kl. 17:00-19:00.

Staðsetning:  Hvammsvöllur.
Leiðbeinendur og  dómarar eru:   
Þann 10.maí verða Ragnar Hinriksson og Helga Classen.                                       
Þann 11.maí verða Róbert Petersen og Ragnar Petersen.                                            
Þann 12. maí verða Edda Rún Ragnarsdóttir og Helga Classen.                                                    
Þetta námskeið er eingöngu ætlað félagsmönnum Fáks  18. ára og eldri.   
Verð fyrir hvert skipti kr.  2.000. ATH. Fákur styrkir verkefnið og því getum við boðið lækkað verð.

Skráning: Mánudaginn 9. maí frá kl. 19:00 –  20:00 í Reiðhöllinni og í síma 861-4041 og 898-1761. 
Kveðja Fræðslunefnd Fáks

Stefnir þú á hestaferð?  
Námskeið í neyðarjárningu

Fræðslunefnd Fáks mun bjóða upp á námskeið í neyðarjárningu. Eftir sýnikennslu  og fyrirlestur leiðbeinanda þá munu nemendur  læra að járna sjálfir eina löpp á sínum hesti. 

Staðsetning kennslu er í  Reiðhöllinni.
Dagsetning  þriðjudaginn 17.maí   frá kl.  19 – 22. 

Verð kr. 5.500 lágmarksfjöldi 5 manns.
Skráning í í Reiðhöllinni og í síma 861-4041 og  898-1761 mánudaginn 9.maí nk frá kl. 19-20.
Leiðbeinandi er Þorgrímur  Hallgrímsson.           
Kveðja frá fræðslunefnd Fáks

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link