Endurnýja starfsleyfi Ísteka
Mynd tengist fréttinni ekkert
Umhverfisstofnun hefur endurnýjað starfsleyfi Ísteka en fyrirtækið vinnur hormónalyf fyrir spendýr, aðallega svín, úr blóði sem tekið er úr fylfullum hryssum.
Umhverfisstofnun barst umsagnir frá 237 aðilum er varðar starfsleyfið og benti stofnunin á í tilkynningu sinni að umsagnirnar vörðuðu fyrst og fremst öflun blóðs úr fylfyllum merum. Benti stofnunin á að starfsleyfið sem um ræðir varðar lyfjaframleiðslu í tilgreindri starfsstöð rekstraraðila og nær ekki til birgja eða öflunar blóðs þess er rekstraraðili vinnur með.
Þá er einnig bent á að MAST eigi að fara með eftirlit með lögum um dýravelferð.
Með þessu nýja starfsleyfi hefur Ísteka nú leyfi til að framleiða allt að 20 kg á ári af lyfjaefni úr allt að 600 tonnum af blóði hryssa. Samkvæmt heimildum Eiðfaxa þyrfti Ísteka ca. 28.600 hryssur í þessa starfsemi til að anna þessari framleiðslu á blóði. (28572 hryssur x 0,84 fyljun x 25 ltr. = 600 tonn af blóði)
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH