Sigurvegari í ágiskunarleik Eiðfaxa
Ágiskunarleikur Eiðfaxa hóf göngu sína fyrir fyrsta kvöldið í Meistaradeildinni, þegar keppt var í fjórgangi. Fyrir þann sem flest stig myndi hljóta var í boði hálfs árs áskrift að Alendis.
Fimm aðilar tóku þátt, einn fyrir hvern landsfjórðung og einn erlendis frá en allir gátu tekið þátt í leiknum með því að skrifa spá um sex efstu knapa að úrslitum loknum í ummæli á Facebook síðu Eiðfaxa.
Reglurnar eru einfaldar:
15 stig fást fyrir að vera með réttan sigurvegara
10 stig fást fyrir að vera með par í réttu sæti
5 stig fást fyrir að vera með rétt par í úrslitum
Í landsfjórðungakeppninni fór það þannig að Austurland bar sigur úr býtum en Einar Ben Þorsteinsson frístundabóndi hlaut flest stig alls 10 stig en með flest stig voru þrjú jöfn. Við þurftum því að reyna skera úr um leikinn þar sem ekki geta þau deilt áskriftinni. Engin af þeim var með réttan sigurvegara en tvö voru með rétt par í réttu sæti. Skoðað var því næst hvor af þeim tveimur væru með fleiri nær úrslitum og stóð þá María Magnúsdóttir ofar með alls 15 stig.
Maríu spá var eftirfarandi:
- Mette Mannseth og Skálmöld frá Þúfum
- Árni Björn Pálsson og Frár frá Sandhól
- Teitur Árnason og Taktur frá Vakurstöðum – 10 stig
- Ragnhildur Haraldsdóttir og Úlfur frá Mosfellsbæ
- Sara Sigurbjörnsdóttir og Fluga frá Oddhól – 5 stig
- Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir og Flóvent frá Breiðstöðum
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH