Hver sigrar Meistaradeildina?

  • 27. janúar 2022
  • Fréttir
Ágiskunarleikur Eiðfaxa – Verðlaun í boði!!

Meistaradeildin hefst í kvöld en ráslistinn var birtur seint í gærkvöldi, því ekki seinna vænna en að fara af stað með ágiskunarleik. Eiðfaxi stóð fyrir þessum leik fyrir allar greinar síðasta vetur með góðum undirtektum og því ekki úr vegi að gera slíkt hið sama í ár. 

Allir geta tekið þátt með því að skrifa í kommenta kerfið á facebook hverjir þau telja að ríði til úrslita og hver standi uppi sem sigurvegari í hverri keppnisgrein. Í boði fyrir hverja grein verða verðlaun fyrir þann sem hlutskarpastur er.

Nú er í verðlaun hálfs árs áskrift að Alendis eða yfir vetrartímabilið. Það gefur að skilja að hann nýtist ekki í kvöld þegar fjórgangur fer fram en eftir það.

Til þess að koma þessu öllu af stað höfum við fengið fjóra hestamenn til þess að spá fyrir um úrslit. Eru þessir aðilar fulltrúar síns landshluta og síðan einn erlendis frá.

Endilega að taka þátt á facebook og spá fyrir um hvernig þú telur að endanleg niðurstaða verði að úrslitum loknum og þú getur unnið áskrift að Alendis!

 Ráslistan er að finna hér

Reglurnar eru einfaldar.

15 stig fást fyrir að vera með réttan sigurvegara
10 stig fást fyrir að vera með par í rétttu sæti
5 stig fást fyrir að vera með rétt par í úrslitum

Austurland

Einar Ben Þorsteinsson – frístundabóndi á Stormi á Fljótsdalshéraði

Hefur oft verið auðveldara að spá. Töluvert af nýjum pörum. Læt þetta fara svona. Teitur er farinn að þekkja Taktinn.

  1. Teitur Árnason og Taktur frá Vakurstöðum
  2. Mette Mannseth og Skálmöl frá Þúfum
  3. Hanna Rún Ingibergsdóttir og Grímur frá Skógarási
  4. Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir og Flóvent frá Breiðstöðum
  5. Jakob Svavar Sigurðsson og Hraunar frá Vorsabæ
  6. Árni Björn Pálsson og Frár frá Sandhól

Norðurland

Líney María Hjálmarsdóttir – hrossaræktandi, tamningamaður og reiðkennari, Tunguhálsi

  1. Árni Björn Pálsson og Frár frá Sandhól
  2. Mette Mannseth og Skálmöld frá Þúfum
  3. Jakob Svavar Sigurðsson og Hraunar frá Vorsabæ
  4. Teitur Árnason og Taktur frá Vakurstöðum
  5. Helga Una Björnsdóttir og Fluga frá Hrafnagili
  6. Ragnhildur Haraldsdóttir og Úlfur frá Mosfellsbæ

Suðurland

Ómar Ingi Ómarsson – hrossaræktandi, tamningamaður og reiðkennari, Horni

  1. Árni Björn Pálsson og Frár frá Sandhól
  2. Jakob Svavar Sigurðsson og Hraunar frá VorsabæÞessir tveir gera allt til að halda sér á toppnum áfram eftir gott gengi síðustu ára.
  3. Sara Sigurbjörnsdóttir og Fluga frá Oddhóli – áttu mjög gott sumar og ég er nokkuð viss um að þær hafi bætt sig.
  4. Mette Mannseth og Skálmöld frá Þúfum -magnað par sem er með nokkuð mikla reynslu og alltaf í toppnum þar sem þær koma fyrir.
  5. Ásmundur Ernir Snorrason og Hlökk frá Strandarhöfði -meiri keppnismann er varla hægt að finna og hryssan hann er mögnuð
  6. Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir og Flóvent frá Breiðsstöðum – munu koma á óvart og gera gott mót

 

Vesturland

Klara Sveinsbjörnsdóttir – tamningamaður og reiðkennari

  1. Mette Mannseth – Skálmöld frá Þúfum
  2. Teitur Árnason – Taktur frá Vakurstöðum
  3. Helga Una Björnsdóttir – Fluga frá Hrafnagili
  4. Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir – Flóvent frá Breiðsstöðum
  5. Jakob Svavar Sigurðsson – Hraunar frá Vorsabæ
  6. Árni Björn Pálsson – Frár frá Sandhól

 

Meginlandi Evrópu 

Agnar Snorri Stefánsson – hrossaræktandi og hestamaður, Danmörku

  1. Mette Mannseth – Skálmöld frá Þúfum
  2. Árni Björn Pálsson – Frár frá Sandhól
  3. Ragnhildur Haraldsdóttir – Úlfur frá Mosfellsbæ
  4. Jakob Svavar Sigurðsson – Hraunar frá Vorsabæ
  5. Sigurður Sigurðarson – Leikur frá Vesturkoti
  6. Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir – Flóvent frá Breiðstöðum

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link