Misjafnt verð á sumar- og haustbeit
Flest reiðhross eru nú komin á haustbeit. Mjög misjafnt verð er á haustbeitinni eftir landssvæðum. Í nágrenni Reykjavíkur, í Mosfellssveit og á Kjalarnesi, eru dæmi um að mánuður fyrir einn hest á sumar- og haustbeit kosti frá 5000 upp í 7500 krónur. Á Suðurlandi og víða í öðrum landshlutum má finna haustbeit fyrir mun lægra verð, eða allt niður í 1000 krónur á hest ef tekin eru á leigu hólf þar sem fólk ber sjálft ábyrgð á sínum hrossum og lítur eftir þeim sjálft.
Mikið af óbitnu graslendi er víða um land, enda hefur hefðbundinn búskapur dregist saman og nautgripum og sauðfé fækkað í högum. Viðmælandi Hestablaðsins í Eyjafirði segir að eigendur jarða þar séu þó ekki ginnkeyptir fyrir að leigja hestamönnum land til hrossabeitar, jafnvel þótt í boði sé að leigjendur girði og haldi við girðingum og taki alfarið ábyrgð á hrossunum. Sömu sögu er að segja á Suðurlandi. Víða má sjá óbitið land sem er orðið kjarri vaxið. Allvíða er stunduð skógrækt, en svo virðist líka sem eigendur kjósi frekar að hafa landið alfriðað heldur en leigja það til beitar.
Þess skal getið að allmörg hestamannafélög eru með land á leigu og leigja það út til félagsmanna á hagstæðu verði. Ekki er ólíklegt að slíkur félagsbúskapur aukist nú þegar kreppt hefur að. Einnig eru nokkur bæjarfélög sem eiga land og leiga það út á vægu gjaldi, svo sem Akranesbær, en bæði má sjá hross og sauðfé í eigu bæjarbúa í beitarhólfum kringum bæinn.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH