Leiðrétting frá Geysi
Hestamannafélagið Geysir sendi frá sér tilkynningu um tiltilhafa félagsins fyrir árið 2021. Því miður voru gerð misstök í tveimur flokkum kynbótahrossa þar sem hæðstu hross ræktuð af Geysisfélaga voru titluð. Biðst hestamannafélagið Geysir afsökunar til hlutaðeigandi aðila og leiðréttir hér með þessi mistök og um leið óskar hestamannafélagið Geysir titilhöfum til hamingju með árangurinn á árinu.
Réttir titilhafar í þessum tveimur flokkum
Hæsti 4 vetra stóðhestur ræktaður af Geysisfélaga
Geisli frá Árbæ 8,23 í einkunn
Ræktendur Vigdís Þórarinsdóttir og Gunnar Andrés Jóhannsson
Hæsta 5 vetra hryssa ræktuð af Geysisfélaga
Ásdís frá Árbæ 8,26 í einkunn
Ræktendur Vigdís Þórarinsdóttir og Gunnar Andrés Jóhannsson
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing
Landsliðsteymi Danmerkur fyrir árið 2027 klárt