Meistaradeild Líflands & æskunnar Meistaradeild Líflands og æskunnar að fara hefjast

  • 2. febrúar 2022
  • Fréttir
Liðakynning á liðunum; Nettó, Sportfákar/Fákaland export og Hrímni / Hest.is

Meistaradeild Líflands og æskunnar hefst 6 febrúar á keppni í fjórgangi í TM höllinni í Fáki. Á heimasíðu deildarinnar er byrjað að kynna liðin og knapana sem munu taka þátt í deildinni í vetur.

Hér fyrir neðan eru þrjú lið kynnt til leiks sem öll munu taka þátt í deildinni í vetur. Liðin eru; Nettó, Hrímnir / Hest.is og Sportfákar / Fákaland export.

Liðið Hrímnir / Hest.is

Þeir eru fjórir kapparnir í liði Hrímnis/Hest.is og voru allir með í deildinni í fyrravetur. Þeir stefna hátt í vetur.

Nafn: Ragnar Snær Viðarsson
Félag: Fákur
Markmið: Reyna að standa mig vetur i deildinni en i fyrra og reyna að komast i úrslit i flestum greinum.
Mottó: “þetta reddast”
Fyndnasti hestamaðurinn: Afi minn Raggi Hinriks og frændi minn Konráð Valur
Hvað verður þú að gera eftir 10 ár: vonandi eitthvað gáfulegt
Nafn: Matthías Sigurðsson
Félag: Fákur
Markmið: Bæta mig sem knapa og gera hestana mína betri
Mottó: “þeir skora sem þora”
Fyndnasti hestamaðurinn: að sjálfsögðu hann afi minn Ragnar Árni Hinriksson
Hvað verður þú að gera eftir 10 ár: temja og þjálfa
Nafn: Sigurður Steingrímsson
Félag: Geysi
Markmið: Verða bestur
Mottó: ekkert sérstakt
Fyndnasti hestamaðurinn: Hafliði Halldórs
Hvað verður þú að gera eftir 10 ár: þar sem lífið leiðir mig
Nafn: Jón Ársæll Bergmann
Félag: Geysi
Markmið: Verða betri i dag en i gær
Mottó: “þeir skora sem þora”
Fyndnasti hestamaðurinn: Konráð Valur
Hvað verður þú að gera eftir 10 ár: Á kynbotabrautinni

Sportfákar / Fákaland Export

Þetta snjalla lið er með í deildinni í annað sinn og er skipað fjórum stúlkum úr Sörla, Spretti og Fáki og eru þær orðnar mjög spenntar fyrir keppnistímabilinu.

Nafn : Sigrún Helga Halldórsdóttir
Félag : Hestamannafélagið Fákur
Markmið : standa mig vel í lífinu
Mottó : sá sem tekur ekki skref mistígur sig ekki
Fyndnasti hestamaðurinn : Meistarinn Árni Sigfús Birgisson
Hvað verður þú að gera eftir 10 ár : ekki hugmynd, vonandi á geggjuðum stað 😉
Nafn: Ásta Hólmfríður Ríkharðsdóttir
Félag: Hestamannafélagið Sprettur
Markmið: bara gera sitt besta
Mottó: aldrei rökræða við bróður þinn
Fyndnasti hestamaðurinn: duoið – Siggi Sig og Diddi Bárða
Hvað verður þú að gera eftir 10 ár: sennilega í háskóla og vinnu
Nafn: Sara Dís Snorradóttir
Félag: Hestamannafélagið Sörli
Markmið: Gera mitt besta
Mottó: It’s okay if you don’t like me, not everyone has good taste
Fyndnasti hestamaðurinn: Litli rauðhærði járningamaðurinn Leó
Hvað verður þú að gera eftir 10 ár: Á hestbaki
Nafn: Lilja Rún Sigurjónsdóttir
Félag: Hestamannafélagið Fákur
Markmið: gera betur en síðast
Mottó: Lífið er veisla
Fyndnasti hestamaðurinn: brósi þegar hann er í stuði
Hvað verður þú að gera eftir 10 ár : hef ekki hugsað svo langt.

Nettó

Nettóliðið tók þátt í deildinni í fyrra en var þó öðruvísi skipað þá en í ár er Embla Móey nýliði í deildinni og Ragnar Bjarki kemur úr liði Top Reiter.

Nafn: Dagur Sigurðarson
Félag: Geysir
Markmið: Vinna stórmót
Mottó: Það gerist ekki neitt ef þú gerir ekki neitt
Fyndnasti hestamaðurinn: Viktor Sigurbjörnsson og Siggi Ragg
Hvað verður þú að gera eftir 10 ár: Starfa sem hestamaður

Nafn: Embla Móey Guðmarsdóttir
Félag: Borgfirðingur
Markmið: Er að njóta þess og hafa gaman á hestum
Mottó: Njóta allra sviða hestamennskunar
Fyndnasti hestamaðurinn: Leó Hauksson
Hvað verður þú að gera eftir 10 ár: Örugglega í háskóla eða á Hólum

Nafn: Friðrik Snær Friðriksson
Félag: Hornfirðingur
Markmið: Ganga vel í lífinu
Mottó: Einn dag í einu
Fyndnasti hestamaðurinn: Viktor Sigurbjörnsson
Hvað verður þú að gera eftir 10 ár: Lifa lífinu

Nafn: Ragnar Bjarki Sveinbjörnsson
Félag: Sprettur
Markmið: Vera betri í dag en í gær
Mottó: Gera mitt besta í hverri grein
Fyndnasti hestamaðurinn: Pass
Hvað verður þú að gera eftir 10 ár: Búinn með háskólanám og vinna við eitthvað skemmtilegt.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link