„Okkur fannst alveg komin tími til að hampa þessu fólki“
LH – félagi ársins eru hvatningarverðlaun fyrir sjálfboðaliða og félaga hestamannafélaga sem vinna fórnfúst og óeigingjarnt starf í þágu hestamennskunnar. „Markmiðið með þessu er að draga fram meira hið jákvæða í hestamennskunni og veita hvatningarverðlaun til þeirra sem halda félagsstarfinu okkar gangandi, þó að vissulega náum við aldrei að verðlauna allt það öfluga fólk. Mette Mannseth stakk þeirri hugmynd að mér að við ættum að verðlauna fyrir sjálboðavinnu og dugnað í félagsstarfinu hjá okkur, í stað þess að verðlauna alltaf bara þá sem standa efst á palli, enda væru engin mót haldin eða verðlaun ef ekki væri fyrir þetta fólk. Mér fannst hugmyndin frábær og ákvað að vinna aðeins meira með hana. Við eigum ótrúlega duglegt fólk í röðum hestamanna sem vinnur óeigingjarnt starf í þágu félagsins síns, hvort sem það er að baka vöfflur, rita á mótum, sinna hliðvörslu, halda utan um æskulýðsstarf, félagshesthús, fjármál eða bara hvað sem er. Okkur fannst alveg komin tími til að hampa þessu fólki meira og liður í því er að fara af stað með svona hvatningaverðlaun, sem félögin taka vonandi vel í og noti jafnvel tækifærið til að verðlauna sérstaklega félaga ársins innan sinna raða, ef þau gera það ekki fyrir“ segir Guðni Halldórsson formaður LH inntur eftir tilurð verðlaunanna.
Í vikunni var sent út bréf á formenn hestamannafélaganna þar sem óskað er eftir að hvert og eitt hestamannafélag tilnefni félaga ársins innan sinna raða og sendi tilnefninguna til LH ásamt rökstuðningi fyrir valinu. Frestur til að skila inn tilnefningum er 1. mars, á netfangið [email protected].
Skipuð hefur verið nefnd sem velur fimm félaga úr innsendum tilnefningum, sem kosið verður um í netkosningu á vef LH um miðjan mars/byrjun apríl.
Í nefndinni sitja:
Berglind Karlsdóttir, framkvæmdastjóri LH
Dagbjört Hulda Guðbjörnsdóttir, formaður æskulýðsnefndar
Einar Gíslason, formaður keppnisnefndar
Gréta V. Guðmundsdóttir, stjórnarmaður í LH
Lilja Björk Reynisdóttir, varamaður í stjórn LH
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH