Samskipadeildin - Áhugamannadeild Spretts “Þetta var ógeðslega gaman. Ég skemmti mér konunglega,”

  • 4. febrúar 2022
  • Fréttir
Viðtal við Eddu Hrund Hinriksdóttur sem sigraði fjórganginn í Equsana deildinni í gær

“Þetta var ógeðslega gaman. Ég skemmti mér konunglega,” segir Edda Hrund Hinriksdóttir eftir sigurinn í gær í fjórgangnum í Equsana deildinni. “Ég get ekki sagt að ég hafi búist við þessu en ég vissi að merin gæti þetta ef ég myndi gera þetta almennilega og vera kraftmikil. Ég vissi alveg að þetta væri hægt en ég átti ekkert frekar von á þessu,” bætir hún við en Edda Hrund reið hryssunni Aðgát frá Víðivöllum fremri sem er frekar reynd keppnishryssa.

Edda Hrund og Aðgát voru í öðru sæti inn í úrslitin en eftir brokkið í úrslitum tóku þær forustuna og héldu henni út úrslitin. “Ég var ekkert mikið að velta því fyrir mér að ég væri efst. Ég einbeitti mér að mínu og var að spá í næsta verkefni þegar einkunnir voru lesnar upp. Í undirmeðvitundinni vissi ég þó að fyrir yfirferðina að ef ég myndi sigla henni jafnt og þétt og ekkert kæmi upp á að þá gæti ég verið komin með þetta,” segir Edda Hrund en Gunnhildur Sveinbjarnardóttir gerði þó harða atlögu að efsta sætinu og eftir greiða töltið var mikil spenna um hvor tæki þetta en mjótt var á munum og munaði einungis 0,07 á þeim stöllum. “Ég er ekki það góð í stærðfræði að eftir greiða töltið hafði ég ekki hugmynd um hvernig þetta hefði farið,” bætir Edda við.

Aðgát er í eigu foreldra Eddu, Huldu Gústafsdóttur og Hinriks Bragasonar á Árbakka, en þau eignuðust hana í haust og hefur hún verið þar í þjálfun. “Þetta er æðislega meri. Hún er ofboðslega mikið og vel þjálfuð. Rosalega skemmtilegt útreiðarhross ef það er rétta orðið en það er rosalega skemmtilegt að ríða á henni. Miklu skemmtilegra en mig grunaði. Það virkar allt því hún er vel taminn og þjálfuð og rosalega heil í hausnum,” segir Edda en Aðgát var áður í eigu Kristínar Lárusdóttur sem keppti mikið á henni ásamt dóttur hennar, Svanhildi Guðbrandsdóttur.

Aðspurð hvort að Edda Hrund stefni með hross í fimmganginn segir hún það enn vera óljóst. “Það eru umræður um það í liðinu að ég eigi að mæta en við þurfum bara að sjá hvað gerist núna á næstu dögum. Við höldum því bara opnu,” segir Edda Hrund sem er afar ánægð með liðsfélaga sína í liði Heimahaga. “Þeir eru svakalega skemmtilegir strákarnir í liðinu. Við stefnum klárlega á að reyna sigra liðakeppnina aftur en við erum með mjög metnaðarfullan þjálfara, mikinn peppara, sem sættir sig ekki við neitt annað,” segir hún en þegar kemur að vali í liðið hefur aldrei verið neitt vesen. “Við hittumst nokkrum sinnum fyrir mót og oft liggur það augum uppi hverjir mæta. Við erum líka með skynsaman og sanngjarnan þjálfara sem tekur þá ákvörðun. Við treystum honum enda hefur hann vanalega haft rétt fyrir sér. Það hefur aldrei neitt komið upp síðan ég byrjaði í liðin og enginn setið heima með sárt ennið,” bætir Edda við.

Edda Hrund var mikið að keppnisbrautinni á sinni yngri árum en setti síðan keppnisjakkann á hilluna. “Ég var svo gott sem hætt að keppa og var bara að ríða út. Þessi deild kom mér aftur af stað á keppnisbrautinni enda mjög góður vettvangur til þess. Þetta er ótrúlega skemmtilegt deild, flott mót og gaman hvað það eru margir þátttakendur og margir sem koma að þessu. Það getur ekki orðið annað en góð stemning í kringum hana,” segir Edda tekur nú þátt í deildinni sjötta sinn og er hvergi nærri hætt.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link