Slaktaumatölt næst á dagskrá
Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum heldur áfram n.k fimmtudag 10.febrúar þegar keppt verður í slaktaumatölti (T2) í TM reiðhöllinni í Víðidal. Dagskrá hefst kl 19.00 í opinni dagskrá á Rúv2 og streymi frá Alendis. Frítt er inn í höllina fyrir gesti og áhorfendur allt upp að 500 manns, samkvæmt sóttvarnarreglum.
Slaktaumatölt fer sífellt vaxandi sem keppnisgrein en hún er krefjandi og reynir á jafnvægi og traust milli knapa hests. Knapi sem vill keppa í slaktaumatölti í meistaradeildinni getur keypt sér keppnisrétt sem 25 knapi. Á heimasíðu deildarinnar má nálgast leikreglur um uppboðsæti. Skráning fer fram á [email protected]. Þátttökugjald er 50.000kr, vilji fleiri en einn taka þátt mun hæstbjóðandi gilda. Skráningu lýkur kl 18.00 þriðjudaginn 8. febrúar.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH