„Hef verið að stefna með Álfaskegg á Heimsmeistaramót“
Arnar Bjarki Sigurðsson er einn af tveimur nýju knöpunum sem valdir voru inn í A – landsliðshóp Íslands. Hann segir það hafa verið mjög góða tilfinningu og mikinn heiður að vera valinn í hópinn en aðspurður hver markmið hans séu innan hópsins segir hann það vera að styrkja starf liðsins og íþróttarinnar. “Stefnan er auðvitað sett á stórmót og allt sem því tilheyrir en að öðru leyti þá ætla ég að taka virkan þátt í starfi landsliðsins og styrkja starfið og íþróttina.”
Arnar Bjarki og Álfaskeggur frá Kjarnholtum hafa átt góðu gengi að fagna á keppnisbrautinni síðustu ár og þá aðallega í fimmgangi en þeir voru m.a. í þriðja sæti á Íslandsmótinu sem fór fram á Hólum síðasta sumar. “Ég hef verið að stefna með hann Álfaskegg á Heimsmeistaramót frá því að við hófum okkar feril,” segir Arnar Bjarki aðspurður hvort stefnan sé sett á Heimsmeistaramót eða Norðurlandamót en hann bætir jafnframt við; “varðandi Norðurlandamót mun ég að sjálfsögðu taka þátt ef ég er með hest sem stendur til boða og er nægilega sterkur til að gera gott mót.”
Aðspurður um þær kröfur sem settar eru á landsliðsknapa svarar Arnar Bjarki því að nauðsynlegt sé að hafa náð góðum árangri en einnig vera fyrirmynd innan vallar sem utan. “Kröfurnar eru að knapar séu fyrirmyndir innan vallar sem utan, taki þátt í starfi landsliðshópsins, fari að kröfum landsliðsþjálfara og auðvitað er nauðsynlegt að ná góðum árangri til að teljast sterkur kandídat fyrir næsta stórmót,” segir hann að lokum.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH