Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum Ráslistinn klár fyrir slaktaumatöltið

  • 9. febrúar 2022
  • Fréttir

Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir sigraði slaktaumatöltið í fyrra á Óskari frá Breiðsstöðum.

Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum heldur áfram á morgun, fimmtudag

Á morgun verður keppt í slaktaumatölti í Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum í Tm höllinni í Víðidal. Dagskrá hefst kl. 19:00 en sýnt verður beint frá mótinu á RÚV2 og á Alendis.is. Frítt er inn í höllina fyrir áhorfendur en allt upp að 500 manns eru leyfðir í höllina, samkvæmt sóttvarnarreglum.

Ljóst er á knapa- og hestakosti að keppnin ætti að verða spennandi en á listanum eru margir góðir slaktaumatöltara ásamt nýjum andlitum.

Af þeim sex pörum sem komust í úrslit í fyrra eru aðeins tveir skráð til leiks en það eru ríkjandi Íslandsmeistarinn í greininni Jakob Svavar Sigurðsson á Kopari frá Fákshólum sem urðu í þriðja sæti og Árni Björn Pálsson á Kötlu frá Hemlu II en þau voru í öðru sæti.

Ráslisti – Slaktaumatölt – Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum

1. Hulda Gústafsdóttir Blesa frá Húnsstöðum Hestvit/Árbakki
2. Davíð Jónsson Ólína frá Skeiðvöllum Skeiðvellir/Storm rider
3. Ásmundur Ernir Snorrason Hlökk frá Strandarhöfði Auðsholtahjáleiga/Horse export
4. Helga Una Björnsdóttir Hnokki frá Eylandi Hjarðartún
5. Arnar Bjarki Sigurðsson Bikar frá Ólafshaga Hrímnir/Hest.is
6. Árni Björn Pálsson Katla frá Hemlu II Top Reiter
7. Þórarinn Eymundsson Skorri frá Skriðulandi Þjóðólfshagi/Sumarliðabær
8. Glódís Rún Sigurðardóttir Hrafnfaxi frá Skeggstöðum Ganghestar/Margrétarhof
9. Flosi Ólafsson Forkur frá Breiðabólsstað Hrímnir/Hest.is
10. Jakob Svavar Sigurðsson Kopar frá Fákshólum Hjarðartún
11. Páll Bragi Hólmarsson Slæða frá Traðarholti Skeiðvellir/Storm rider
12. Sara Sigurbjörnsdóttir Fluga frá Oddhóli Auðsholtshjáleiga/Horse export
13. Teitur Árnason Njörður frá Feti Top Reiter
14. Gústaf Ásgeir Hinriksson Skálmöld frá Eystra-Fróðholti Hestvit/Árbakki
15. Ragnhildur Haraldsdóttir Katla frá Mörk Ganghestar/Margrétarhof
16. Sigurður Sigurðarson Skugga-Sveinn frá Þjóðólfshaga Þjóðólfshagi/Sumarliðabær
17. Sigursteinn Sumarliðason Huld frá Arabæ Skeiðvellir/Storm rider
18. Villiköttur Auðsholtshjáleiga/Horse export
19. Viðar Ingólfsson Meitill frá Akureyri Hrímnir/Hest.is
20. Hinrik Bragason Kveikur frá Hrísdal Hestvit/Árbakki
21. Sigurður Vignir Matthíasson Dýri frá Hrafnkelsstöðum Ganghestar/Margrétarhof
22. Eyrún Ýr Pálsdóttir Doðrant frá Vakurstöðum Top Reiter
23. Hans Þór Hilmarsson Tónn frá Hjarðartúni Hjarðartún
24. Bjarni Jónasson Harpa Sjöfn frá Hvolsvelli Þjóðólfshagi/Sumarliðabær

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link