Hver sigrar slaktaumatöltið í kvöld?
Annað mót Meistaradeildarinnar í hestaíþróttum er í kvöld en ráslistinn var birtur í gærkvöldi. Eiðfaxi stóð fyrir ágiskunarleik fyrir síðasta mót með góðum undirtektum og höldum við því áfram.
Allir geta tekið þátt með því að skrifa í kommenta kerfið á facebook hverjir þau telja að ríði til úrslita og hver standi uppi sem sigurvegari í hverri keppnisgrein. Í boði fyrir hverja grein verða verðlaun fyrir þann sem hlutskarpastur er.
Nú er í verðlaun 10.000 kr. gjafabréf á einn af þessum veitingastöðum; Kaffi Krús, Tryggvaskáli, Messinn á Lækjargötu, Messinn á Selfossi (opnar í vor), Vor eða Konungskaffi.
Til þess að koma þessu öllu af stað höfum við fengið fjóra hestamenn til þess að spá fyrir um úrslit. Eru þessir aðilar fulltrúar síns landshluta.
Endilega að taka þátt á facebook og spá fyrir um hvernig þú telur að endanleg niðurstaða verði að úrslitum loknum og þú getur unnið 10.000 kr. gjafabréf
Reglurnar eru einfaldar.
15 stig fást fyrir að vera með réttan sigurvegara
10 stig fást fyrir að vera með par í rétttu sæti
5 stig fást fyrir að vera með rétt par í úrslitum
Ef sú staða kemur upp að einhverjir eru jafnir er skoðað hvort einhver af þeim er með réttan sigurvegara ef það nær ekki að skera úr um vinnigshafa er skoðaður fjöldi af réttum pörum í réttum sætum og síðan hver af þeim er með fleiri knapa nær úrslitum.
Austurland
Reynir Atli Jónsson – tamningamaður og reiðkennari, Þórshöfn
- Helga Una Björnsdóttir og Hnokki frá Eylandi
- Jakob Svavar Sigurðsson og Kopar frá Fákshólum
- Glódís Rún Sigurðardóttir og Hrafnfaxi frá Skeggstöðum
- Árni Björn Pálsson og Katla frá Hemlu II
- Gústaf Ásgeir Hinriksson og Skálmöld frá Eystra-Fróðholti
- Teitur Árnason og Njörður frá Feti
Norðurland
Líney María Hjálmarsdóttir – hrossaræktandi, tamningamaður og reiðkennari, Tunguhálsi
Þetta er ekki auðvelt. Mér sýnist á þessum ráslista þá gætu allir unnið. Til að setja eitthvað niður
- Jakob Svavar Sigurðsson og Kopar frá Fákshólum
- Árni Björn Pálsson og Katla frá Hemlu II
- Helga Una Björnsdóttir og Hnokki frá Eylandi
Svo hljóta þessir norðlendingar að geta eitthvað 😉

Suðurland
Ómar Ingi Ómarsson – hrossaræktandi, tamningamaður og reiðkennari, Horni
- Jakob Svavar Sigurðsson og Kopar frá Fákshólum
- Flosi Ólafsson og Forkur frá Breiðabólsstað
- Hinrik Bragason og Kveikur frá Hrísdal
- Helga Una Björnsdóttir og Hnokki frá Eylandi
- Árni Björn Pálsson og Katla frá Hemlu II
- Gústaf Ásgeir Hinriksson og Skálmöld frá Eystra-Fróðholti
Vesturland
Klara Sveinsbjörnsdóttir – tamningamaður og reiðkennari
- Jakob Svavar Sigurðsson og Kopar frá Fákshólum
- Hinrik Bragason og Kveikur frá Hrísdal
- Teitur Árnason og Njörður frá Feti
- Helga Una Björnsdóttir og Hnokki frá Eylandi
- Árni Björn Pálsson og Katla frá Hemlu II
- Eyrún Ýr Pálsdóttir og Doðrant frá Vakurstöðum
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH