Flosi vann slaktaumatöltið
Flosi Ólafsson og Forkur frá Breiðabólstað Mynd: Meistaradeildin
Nú rétt í þessu var að ljúka keppni í slaktaumatölti í Meistaradeildinni í hestaíþróttum. Mikil spenna ríkti fyrir kvöldinu en ráslistinn spáði fyrir hörku keppni og er óhætt að segja að kvöldið hafi staðið undir væntingum. Frábærar sýningar og sannkallaður Meistaradeildar bragur á keppninni.
Eftir forkeppni stóðu þau efst Árni Björn Pálsson og Katla frá Hemlu II með 7,97 í einkunn. Hinrik Bragason á Kveik frá Hrísdal var annar með 7,77 í einkunn og þriðji Sigursteinn Sumarliðason á Huld frá Arabæ 7,73. Held það sé óhætt að segja að frammistaða Sigursteins á Huld hafi komið mörgum á óvart en ekki margir spáðu þeim sæti í úrslitum, enda frumraun þeirra í slaktaumatölti. Margir voru spenntir að sjá þá Flosa Ólafsson og Fork frá Breiðabólstað en þeir nældu sér í fjórða sætið í forkeppni.
A úrslitin voru sannkölluð veisla en eftir frjálsa ferð á tölti tóku þeir Flosi og Forkur forustuna með 8,67 í einkunn fyrir það atriði. Sigursteinn, Hinrik og Árni komu þar á eftir jafnir með 8,33 í einkunn. Næst var riðið hægt tölt og héldu þeir Flosi og Forkur yfirburðum sínum og fór svo að eftir slaka tauminn stóðu þeir félagar uppi með gullpálmann í höndunum. Frumraun þeirra í slaktaumatölti, ekki slæm byrjun það. Jafnir í öðru sæti urðu þeir Árni Björn og Hinrik með 8,08 í einkunn. Allar niðurstöður eru hægt að sjá hér fyrir neðan.

Þrír á palli Mynd: Meistaradeildin
Lið Hrímnis/Hest.is tóku liðaplattann með 50 stig en það voru þeir Flosi, Viðar Ingólfsson og Arnar Bjarki Sigurðsson sem kepptu fyrir liðið í kvöld. Liðið náði með árangri kvöldsins að skjóta sér úr næst síðasta sætinu í liðakeppninni í annað sætið. Lið Top Reiter leiðir þó enn liðakeppnina með 96 stig eftir fjórganginn og slaktaumatöltið. Eftir kvöldið í kvöld eru þeir þrír jafnir efstir í einstaklingskeppninni, Teitur Árnason, Flosi Ólafsson og Sigurður Sigurðarson með 12 stig.
A úrslit – Niðurstaða – Slaktaumatölt T2
1 Flosi Ólafsson Forkur frá Breiðabólsstað Hrímnir/Hest.is 8,21
2-3 Árni Björn Pálsson Katla frá Hemlu II Top Reiter 8,08
2-3 Hinrik Bragason Kveikur frá Hrísdal Hestvit/Árbakki 8,08
4 Sigursteinn Sumarliðason Huld frá Arabæ Skeiðvellir/Storm Rider 8,00
5-6 Helga Una Björnsdóttir Hnokki frá Eylandi Hjarðartún 7,58
5-6 Jakob Svavar Sigurðsson Kopar frá Fákshólum Hjarðartún 7,58
Forkeppni – Niðurstaða – Slaktaumatölt T2
Knapi Hross Einkunn Lið
1 Árni Björn Pálsson Katla frá Hemlu II Top Reiter 7,97
2 Hinrik Bragason Kveikur frá Hrísdal Hestvit/Árbakki 7,77
3 Sigursteinn Sumarliðason Huld frá Arabæ Skeiðvellir/Storm Rider 7,73
4 Flosi Ólafsson Forkur frá Breiðabólsstað Hrímnir/Hest.is 7,70
5 Jakob Svavar Sigurðsson Kopar frá Fákshólum Hjarðartún 7,50
6 Helga Una Björnsdóttir Hnokki frá Eylandi Hjarðartún 7,47
7 Teitur Árnason Njörður frá Feti Top Reiter 7,40
8 Þórarinn Eymundsson Skorri frá Skriðulandi Þjóðólfshagi/Sumarliðabær 7,37
9 Sigurður Vignir Matthíasson Dýri frá Hrafnkelsstöðum 1 Ganghestar/Margrétarhof 7,33
10 Arnar Bjarki Sigurðarson Bikar frá Ólafshaga Hrímnir/Hest.is 7,30
11 Vilfríður Sæþórsdóttir List frá Múla Auðsholtshjáleiga Horseexport 7,27
12 Ásmundur Ernir Snorrason Hlökk frá Strandarhöfði Auðsholtshjáleiga Horseexport 7,23
13 Bjarni Jónasson Harpa Sjöfn frá Hvolsvelli Þjóðólfshagi/Sumarliðabær 7,13
14 Viðar Ingólfsson Meitill frá Akureyri Hrímnir/Hest.is 7,10
15 Hulda Gústafsdóttir Blesa frá Húnsstöðum Hestvit/Árbakki 7,03
16 Hans Þór Hilmarsson Tónn frá Hjarðartúni Hjarðartún 7,00
17-18 Páll Bragi Hólmarsson Slæða frá Traðarholti Skeiðvellir/Storm Rider 6,83
17-18 Sara Sigurbjörnsdóttir Fluga frá Oddhóli Auðsholtshjáleiga Horseexport 6,83
19 Ragnhildur Haraldsdóttir Katla frá Mörk Ganghestar/Margrétarhof 6,77
20 Davíð Jónsson Ólína frá Skeiðvöllum Skeiðvellir/Storm Rider 6,70
21 Eyrún Ýr Pálsdóttir Doðrantur frá Vakurstöðum Top Reiter 5,77
22 Gústaf Ásgeir Hinriksson Skálmöld frá EystraFróðholti Hestvit/Árbakki 5,63
23 Glódís Rún Sigurðardóttir Hrafnfaxi frá Skeggsstöðum Ganghestar/Margrétarhof 5,50
24 Sigurður Sigurðarson Skugga-Sveinn frá Þjóðólfshaga 1 Þjóðólfshagi/Sumarliðabær 5,47
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH