Top Reiter enn á toppnum
Lið Hrímnis / Hest.is voru stigahæsta liðið í slaktaumatöltinu.
Þá er tveimur mótum lokið í Meistaradeildinni en keppni í slaktaumatölti fór fram í gær. Flosi Ólafsson vann greinina á Fork frá Breiðabólsstað en nældi hann sér í 12 stig í einstaklingskeppninni og stendur þar nú efstur ásamt þeim Sigurði Sigurðarsyni og Teiti Árnasyni sem einnig eru með 12 stig. Á eftir þeim er nýliðinn Sara Sigurbjörnsdóttir með 10 stig og jafnir í fimmta sæti eru þeir Árni Björn Pálsson og Hinrik Bragason með 9 stig. Hægt er að sjá 10 efstu knapa í einstaklingskeppninni hér fyrir neðan.
Miklar hrókeringar urðu í liðakeppninni í gær og er gríðarleg mjótt á munum á liðum. Top Reiter er þó með nokkuð gott forskot með 96 stig. Hrímnir / Hest.is unnu liðaplattann í gær og náðu að færa sig úr næsta síðasta sæti í það efsta. Þjóðólfshagi/Sumarliðabær héldu þriðja sætinu en hægt er að sjá stöðuna í liðakeppninni hér fyrir neðan.
Staðan í liðakeppninni
1. Top Reiter 96 stig
2. Hrímnir/Hest.is 79,5 stig
3. Þjóðólfshagi/Sumarliðabær 76 stig
4. Auðsholtshjáleiga/Horseexport 72 stig
5. Hestvit/Árbakki 71,5 stig
6. Ganghestar/Margrétarhof 71 stig
7. Hjarðartún 69 stig
8. Skeiðvellir/Storm Rider 65 stig
Staðan í einstaklingskeppninni
1. Sigurður Sigurðarson Þjóðólfshagi/Sumarliðabær 12 stig
1. Flosi Ólafsson Hrímnir/Hest.is 12 stig
1. Teitur Árnason Top Reiter 12 stig
4. Sara Sigurbjörnsdóttir Auðsholtshjáleiga Horseexport 10 stig
5. Árni Björn Pálsson Top Reiter 9 stig
5. Hinrik Bragason Hestvit/Árbakki 9 stig
7. Pierre Sandsten-Hoyos Hestvit/Árbakki 7 stig
7. Sigursteinn Sumarliðason Skeiðvellir/Storm rider 7 stig
9. Hanna Rún Ingibergsdóttir Top Reiter 6 stig
10. Helga Una Björnsdóttir Hjarðartún 5.5 stig
10. Jakob Svavar Sigurðsson Hjarðartún 5.5 stig
Staðan í liðakeppninni
1. Top Reiter 96 stig
2. Hrímnir/Hest.is 79,5 stig
3. Þjóðólfshagi/Sumarliðabær 76 stig
4. Auðsholtshjáleiga/Horseexport 72 stig
5. Hestvit/Árbakki 71,5 stig
6. Ganghestar/Margrétarhof 71 stig
7. Hjarðartún 69 stig
8. Skeiðvellir/Storm Rider 65 stig
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH