Sjúkrajárningar

  • 16. febrúar 2022
  • Fréttir
Sýnikennsla og fræðsludagar fyrir dýralækna

Dagana 25. og 26. febrúar verður haldin sýnikennsla og fræðsludagar fyrir dýralækna á Dýraspítalanum Glæsibær, Skagafirði.

Viðburðurinn er haldinn í samstarfii við járningameistarana Kristján Elvar Gíslason og Aksel Vibe og munu dýralæknarnir Helga Gunnarsdóttir og Dr. Sigríður Björnsdóttir vera með fyrirlestra. Fjallað verður um algenga fótakvilla hjá hrossum og hvernig ýta má sjúkrajárningar til meðhöndlunar þeirra.

Dagskrá

25. febrúar
09:30 Skráning og kaffi
10:00 Hófsperra, fyrirlestur (Helga Gunnarsdóttir)
11:00 Hófsperra, sjúkrajárning
12:30 Matur
13:30 Hófsprungur inngangur
14:30 Hófsprungur sjúkrajárningar
17:30 Dagskrárlok
19:00 Sameiginlegur kvöldverður

26. febrúar
09:00 Spatt, fyrirlestur (Dr. Sigríður Björnsdóttir)
10:30 Sjúkrajárningar tengdar hækla- og hnjávandamálum
12:30 Matur
13:30 Kvíslbandabólga, greingar og umræður
14:30 Kvíslbandabólga, sjúkrajárning
17:30 Dagskrárlok

Þátttökugjald er kr. 65.000. Innifalið er kaffi og hádegismatur báða dagana. Hægt er að skrá sig með því að senda tölvupóst á netfangið [email protected] Viðkomandi fær sent reikningsnúmer til millifærslu þátttökugjalds. Vinsamlega takið fram í tölvupóstinum hvort áhugi sé fyrir sameiginlegum kvöldverði á veitingastaðnum Sauðá, Sauðárkróki (ekki innifalið í verði).

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link