Fimmgangur á föstudaginn
Olil Amble sigraði fimmganginn í fyrra á Álfaklett frá Syðri-Gegnishólum
Næsta grein í Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum er fimmgangur, keppnin er haldin í Samskipahöllinni föstudagskvöldið 25. febrúar. Keppnin hefst kl 19.00 og er sýnd í opinni dagskrá á RÚV 2 og í áskrift á Alendis.is
Frítt verður inn í Samskipahöllina í boði Líflands, við hvetjum alla hestaunnendur til að gera sér dagamun og mæta, húsið opnar kl 17:30, boðið verður upp á kótilettur í raspi og drykki af öllum stærðum og gerðum.
Knapi sem vill keppa í fimmgangi í Meistaradeild Líflands getur keypt sér keppnisrétt sem 25. knapi. Skráning fer fram á [email protected] Þátttökugjald er 50.000 kr án VSK., vilji fleiri en einn taka þátt mun hæstbjóðandi gilda. Skráningu lýkur miðvikudaginn 23. febrúar kl 22:00.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH