Enn hægt að skrá sig á Opna Blue Lagoon mótið

  • 23. febrúar 2022
  • Fréttir
Skráning hefur verið framlengd á Opna Blue Lagoon þar sem keppt verður í fimmgangi og slaktaumatölti

Búið er að framlengja skráning á Opna Blue Lagoon mótið til miðnættis í kvöld, 23. febrúar. Keppt verður í fimmgangi F2 og slaktaumatölti T4

Næsta grein í Blue Lagoon mótaröðinni er fimmgangur og slaktaumatölt fyrir knapa í barna og unglingaflokki. Mótið fer fram laugardaginn 26. febrúar og hefst mótið um kl 13:30, en nákvæm tímasetning verður auglýst þegar dagskrá og ráslistar verða birtir.

Eftirfarandi flokkar og greinar eru í boði næstkomandi laugardag:
Barnaflokkur (10 – 13 ára) – fimmgangur F2
Unglingaflokkur (14 – 17 ára) – fimmgangur F2
Barnaflokkur (10 – 13 ára) – slaktaumatölt T4
Unglingaflokkur (14 – 17 ára) – slaktaumatölt T4

Æfingartímar fyrir þessa grein er; fimmtudaginn 24.2.2022 kl 13:00 – 15:00

Sex efstu knapar fara í úrslit en það verða ekki riðin B-úrslit. Knapar í barna- og unglingaflokki safna stigum í gegnum mótaröðina og verða veitt verðlaun fyrir stigahæstu knapana í hverjum flokki á síðasta mótinu. Mótið er opið öllum knöpum í yngri flokkum.

Dagsetningar Blue Lagoon mótaraðarinnar sem eftir eru:
26. febrúar – fimmgangur og T2
18. mars – tölt
25. mars – gæðingakeppni

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link