Ný útfærsla á kynbótahlutanum á Heimsmeistaramótinu

  • 23. febrúar 2022
  • Fréttir

Grani frá Torfunesi stóð efstur í sínum flokki á HM 2017 Mynd: Krijn Buijtelaar

Gerðar verða breytingar á útfærslu á kynbótahlutanum á næsta Heimsmeistaramóti í Hollandi 2023

Kynbótahlutinn verður áfram órjúfanlegur hluti af heimsmeistaramóti íslenska hestisns en árið 2023 í Oirschot í Hollandi mun verða gerðar verulegar breytingar á framkvæmd hans en með þessum breytingum er vonast eftir að auka aðdráttarafl kynbótasýninganna samanborið við fyrri heimsmeistaramót.

Til dæmis verður sleppt að dæma sköpulag upp á nýtt á mótinu. Sköpulagsdómurinn mun því fylgja hrossinu inn á mótið líkt og hefur verið gert á Landsmótum.

Hrossin mæta því einungis í hæfileikadóm en vanalega eru sendir tveir fulltrúar frá hverju aðildarlandi í hvern aldursflokk, (5 vetra, 6 vetra 0g 7 vetra og eldri), þ.e.a.s einn stóðhestur og ein hryssa.

Samkvæmt Isibless verður einnig breyting á því hvernig kynbótahrossin verða kynnt á mótinu en eins og hefur tíðkast á kynbótasýningum eru hrossin einungis kynnt í braut og síðan ekki söguna meir. Lesin er upp dómur þeirra eftir sýninguna en allar lýsingar er einungis hægt að sjá á netinu inn á WorldFeng. Það verður breyting á þessu á mótinu en nú verða hrossin kynnt í braut ásamt því að á meðan á sýningunni stendur mun kynnir ásamt dómara kynna fyrir áhorfendum einkunnir og lýsa því sem þeir sjá í brautinni á meðan verið er að sýna hrossið. Með þessu er vonast til að gera kynbótasýningarnar meira heillandi og mun líflegri. Áhorfandinn fær að heyra þessar upplýsingar strax og skapar þetta gagnsæi, er skemmtilegt og gríðarlega lærdómsríkt.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link