Suðurlandsdeildin Liðakynning á liði Byko í Suðurlandsdeildinni

  • 23. febrúar 2022
  • Fréttir
Suðurlandsdeildin hefst 1 mars á keppni í parafimi

Suðurlandsdeildin er alveg að hefjast og hestamenn geta fjölmennt í Rangárhöllina sem er kærkomið nú eða fylgst með í beinni útsendingu á Alendis. Suðurlandsdeildin hefur göngu sína á ný, nú í sjötta sinn, þriðjudaginn 1. mars n.k. Það er ekki seinna vænna en að fara af stað og kynna liðin fjórtán sem etja munu kappi í Rangárhöllinni í vetur.

Suðurlandsdeildin hefur nokkra sérstöðu þar sem keppnin er eingöngu liðakeppni og hvert lið er skipað þremur atvinnumönnum og þremur áhugamönnum. Keppni hefst að þessu sinni á Parafimi, sem má segja að sé einkennisgrein Suðurlandsdeildarinnar, þar sem atvinnumaður og áhugamaður mynda par og ríða fimi prógram sem þeir hafa sjálfir sett upp fyrir sig og sína hesta. Oft hefur mikil stemning skapast fyrir greininni, og má búast við 28 mjög fjölbreyttum og skemmtilegum sýningum. Hestamenn og aðrir velunnarar eru hvattir til að mæta í Rangárhöllina þann 1. mars, hitta mann og annan og fylgjast með stórglæsilegum sýningum Parafiminnar.

Spennan magnast meðal Sunnlenskra hestamanna og ljóst er að útlit er fyrir gríðarlega sterka keppni í vetur!

Fyrsta liðið sem við kynnum til leiks í Suðurlandsdeildinni 2022 er sigurliðið frá því í fyrra, lið BYKO:

Um BYKO

Árið 1962 opnuðu Guðmundur H. Jónsson og Hjalti Bjarnason 135 fermetra byggingavöruverslun við Kársnesbraut í Kópavogi. Í upphafi var einungis verslað með grófa vöru en innan árs var opnuð þar smávöruverslun. Árið 1972 var verslunin flutt að Nýbýlavegi 6 og varð hún strax leiðandi verslun á sínu sviði. BYKO er enn í dag í eigu sömu fjölskyldu.

BYKO er leiðandi fyrirtæki á íslenskum byggingarvörumarkaði sem þjónustar bæði einstaklinga og fagaðila í byggingariðnaði. BYKO rekur byggingarvöruverslanir, leigumarkað og vöruhús í Kópavogi, Reykjavík, Reykjanesbæ, á Selfossi og Akureyri. Auk þess leggur fyrirtækið áherslu á að þróa stafrænar lausnir og dreifileiðir við þjónustu við viðskiptavini.

 

Við byrjum á að kynna liðsstjóra liðsins, Brynju Amble, en hún keppir sem atvinnumaður:

Nafn: Brynja Amble Gísladóttir
Aldur: 28 ára held ég alveg örugglega
Starfstitill: Tamningamaður og allt annað sem fylgir því að vera með hross
Hvaða greinar stefnir þú á þátttöku í: Parafimi, fjórgangur og tölt eru stefnan, restin kemur í ljós
Eftirminnilegasta upplifun tengd hestamennsku: Löngufjörur á Þúsöld frá Hólum og girðingavinna á Sædísi frá Ketilsstöðum var skemmtilegt og lærdómsríkt en reiðtúrar á Álfhildi, Álfakletti og Trymbli (fékk að leggja) er ógleymanlegt
Hvað gerir Suðurlandsdeildin fyrir þig: Held að rétt svar sé „heldur manni á tánum“
Hvort sjáum við þig á vellinum eða í brekkunni á Landsmótinu á Hellu í sumar: Vonandi á vellinum en annars bara í brekkunni að styðja mitt fólk

Aðrir atvinnumenn:

Nafn: Elin Holst
Aldur: Fædd 1985
Starfstitill: Tamningamaður, og allt annað sem fylgir því að hafa hross.
Hvaða greinar stefnir þú á þátttöku í? Allt nema skeið, er ekki með skeiðhest.
Eftirminnilegasta upplifun tengd hestamennsku? Vá það er margt. En 3 gull á Íslandsmóti 2016 og sigur í B-flokk Landsmóti 2018.
Hvað gerir Suðurlandsdeildin fyrir þig? Heldur manni á tánum auðvitað
Hvort sjáum við þig á vellinum eða í brekkunni á Landsmótinu á Hellu í sumar? Vonandi á kynbótabrautinni, annars í brekkunni.

Nafn: Herdís Rútsdóttir
Aldur: 30
Starfstitill: Háskólanemi, tamningamaður.
Hvaða greinar stefnir þú á þátttöku í? Ég stefni á að keppa í fimmgangi allavegana.
Eftirminnilegasta upplifun tengd hestamennsku? Að fylgjast með 4 vetra meri úr minni ræktun og eigu à landsmóti hestamanna. Var alveg agalega stolt og glöð.
Hvað gerir Suðurlandsdeildin fyrir þig? HELDUR MÉR Á TÁNUM ? djók en samt ekki ? Líka bara gaman að keppa í liðakeppni með svona frábærum hópi fólks og hafa eitthvað spennandi að stefna að yfir vetrartímann í hestamennskunni.
Hvort sjáum við þig á vellinum eða í brekkunni á Landsmótinu á Hellu í sumar? Allavegana í brekkunni, annað verður bara að koma í ljós.

Áhugamenn:

Nafn: Árni Sigfús Birgisson
Aldur: 37
Starfstitill: Grjótgás ehf
Hvaða greinar stefnir þú á þátttöku í? Allar
Eftirminnilegasta upplifun tengd hestamennsku? Sigraði Polo mót í Vesturkoti
Hvað gerir Suðurlandsdeildin fyrir þig? Á tánum ? held ég og gaman að vera með
Hvort sjáum við þig á vellinum eða í brekkunni á Landsmótinu á Hellu í sumar? Í brekkunni

Nafn: Maiju Maaria Varis
Aldur: 28 ára
Starfstitill: Reiðkennari og tamningamaður
Hvaða greinar stefnir þú á þátttöku í? Það á eftir að skýrast betur, væri allavega gaman að vera með í fimmgangnum
Eftirminnilegasta upplifun tengd hestamennsku? Erfitt að velja þar sem þau eru svo mörg og allskonar.
Hvað gerir Suðurlandsdeildin fyrir þig? Peppar mann upp og heldur mann að sjálfsögðu á tánum.
Hvort sjáum við þig á vellinum eða í brekkunni á Landsmótinu á Hellu í sumar? Allavega í brekkunni en bæði væri gaman.

Nafn: Sævar Örn Sigurvinsson
Aldur
: 51
Starfstitill: Rófu- og ferðaþjónustubóndi
Hvaða greinar stefnir þú á þátttöku í? Sem flestar
Eftirminnilegasta upplifun tengd hestamennsku? 2. sæti í T2 í Meistaradeildinni fyrir nokkuð mörgum árum á Þotu frá Efra-Seli
Hvað gerir Suðurlandsdeildin fyrir þig? Heldur manni á tánum
Hvort sjáum við þig á vellinum eða í brekkunni á Landsmótinu á Hellu í sumar? Í brekkunni

Sjáumst í Rangárhöllinni þann 1. mars n.k. !

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link