Rúnar og Viðar unnu sitthvorn flokkinn

  • 3. mars 2022
  • Fréttir
Niðurstöður frá fyrsta móti í G. Hjálmarsson deildinni

Þann 19. febrúar var fyrsta mótið í G. Hjálmarsson deildinni haldið. Góð skráning var í báða flokka en keppt var í 1 flokk V1 fjórgangi og 2 flokk V2 fjórgangi. Margt var um manninn í stúkunni sem gaman var að sjá.

2. flokkur hóf keppni og eftir forkeppni leiddi Dalvíkingurinn Rúnar Júlíus Gunnarsson á hesti sínum Val frá Tóftum með einkunnina 6.40, héldu þeir félagar sínu sæti og sigruðu úrslitin einnig með einkunnina 6.70 þrátt fyrir harða atlög annara knapa

Í 1. flokk var það hinir margreyndu félagar Viðar Bragason og Þytur frá Narfastöðum sem voru efstir eftir forkeppni með einkunnina 6.90, þeir félgar héldu sínu sæti í úrslitum og sigruðu með einkunnina 7.20 eftir glæsi sýningar.

En úrslit voru eftirfarandi:

2. flokkur A- úrslit

1. Rúnar Júlíus Gunnarsson og Valur frá Tóftum 6.70

2. Helena Ketilsdóttir og Kambur frá Akureyri 6.43

3. Hreinn Haukur Pálsson og Léttir frá Húsanesi 5.97

4. Svanur Berg Jóhannsson og Stormur frá Feti 5.93

5. Baldur Rúnarsson og Gyðja frá Hveragerði 5.73

6. Hjörleifur Helgi Sveinbjarnarson og Sigur frá Steinnesi 5.50

 

1. flokkur A- úrslit

1. Viðar Bragason og Þytur frá Narfastöðum 7.20

2. Vignir Sigurðsson og Stjörnuþoka frá Litlu-Brekku 6.83

3. Tryggvi Björnsson og Birta frá Húsavík 6.73

4. Fanndís Viðarsdóttir og Birta frá Gunnarsstöðum 6.70

5. Egill Már Vignisson og Bjarmi frá Akureyri 6.63

5. Guðmundur Karl Tryggvason og Assa frá Miðhúsum 6.47

 

Nánari niðurstöður má finna á www.lettir.is og í LH kappa appinu

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link