Uppskeruhátíð og folaldasýning
Hrossaræktarfélag Flóahrepps ætlar að gera aðra tilraun til að halda folaldasýningu og vona að veðurspár verði hliðhollari að þessu sinni en folaldasýning Hrossaræktarfélags Flóahrepps, verður haldin sunnudaginn 13. mars 2022 í Sleipnishöllinni að Brávöllum Selfossi og hefst hún kl. 13:30. Þátttökugjald er 2.500 kr. fyrir hvert folald og greiðist með reiðufé til gjaldkera.
Skráningafrestur rennur út kl. 22:00 föstudaginn 11. mars. Koma verður fram nafn á folaldi, litur, móðir, faðir, ræktandi og eigandi. Skráning er hjá Ágústi Inga [email protected] sími 899-5494, Atla Geir [email protected] sími 898-2256 og á netfang félagsins [email protected]. Athugið að þeir sem höfðu skráð folöld sín í fyrra skiptið eru beðnir um að staðfesta hvort þeir ætli að vera með.
Áhorfendur velja með kosningu glæsilegasta folaldið. Veitt verða verðlaun fyrir þrjú efstu sætin, merfolöld og hestfolöld.
Þeir sem verða með folöld eru beðnir um að mæta eigi síðar en kl. 13:00.
Uppskeruhátíð
Hrossaræktarfélag Flóahrepps ætlar einnig að skella í uppskeruhátíð á Kríukránni laugardagskvöldið 19. mars næstkomandi. Á boðstólnum verður hlaðborð af söltuðu hrossakjöti og hrossabjúgum ásamt meðlæti. Þá verða einnig afhent verðlaun fyrir hrossaræktarárið 2021. Húsið opnar kl. 20:00. Verð á mann er 3.500 kr.
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku á netföngin [email protected] eða [email protected]. Einnig má hringja í síma 899-5494 (Ágúst Ingi) og 898-2256 (Atli Geir). Tilkynna skal þátttöku í síðasta lagi 13. mars nk.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH