Meistaradeild KS í hestaíþróttum Mette og Skálmöld sigurvegarar í fjórgangi

  • 12. mars 2022
  • Fréttir
Lið Íbishóls hlaut liðaplattann

Annað mót Meistaradeildar KS í hestaíþróttum fór fram í kvöld 11.mars í Reiðhöllinni Svaðastöðum. Fjöldi manns mætti sem skapaði skemmtilega stemmningu í höllinni.

Það var sigurparið frá því í gæðingafiminni Mette Mannseth og Skálmöld frá Þúfum sem stóðu efstar með einkunnina 7,77 en þær hafa sigrað fjórganginn í Meistaradeild KS nú fjögur ár í röð!

Í öðru sæti urðu Bjarni Jónasson og Harpa – Sjöfn frá Hvolsvelli með einkunina 7,20 og í því þriðja urðu Védís Huld Sigurðardóttir og Hrafnfaxi frá Skeggsstöðum með 7,0.
Lið Íbishóls hlaut liðaplattann í kvöld en þau áttu tvo knapa í A-úrslitum og einn í B-úrslitum.

Allar niðurstöður er hægt að nálgast hér að neðan:

1. Mette Mannseth & Skálmöld frá Þúfum & 7,77 / Þúfur
2. Bjarni Jónasson & Harpa Sjöfn frá Hvolsvelli & 7,20 / Storm Rider
3. Védís Huld Sigurðardóttir & Hrafnfaxi frá Skeggsstöðum & 7,00 / Íbishóll
4. Lea Christine Busch & Kaktus frá Þúfum 6,83 / Þúfur
5. Magnús Bragi Magnússon & Óskadís frá Steinnesi 3,93 / Íbishóll
6. Fanndís Viðarsdóttir & Þytur frá Narfastöðum 6,83 / Eques
7. Ásdís Ósk Elvarsdóttir& Muni frá Syðra-Skörðugili 6,80 / Storm Rider
8. Guðmar Þór Pétursson & Skandall frá Varmalæk 1 6,77 / Leiknir
9. Guðmunda Ellen Sigurðardóttir & Flaumur frá Fákshólum 6,73
10. Guðmar Freyr Magnússon & Sigursteinn frá Íbishóli 6,53 / Íbishóll
11. Konráð Valur Sveinsson & Seiður frá Hólum 5,43 / Leiknir
12. Þórarinn Eymundsson & Þrá frá Prestsbæ 3,87 / Hrímnir
13-16. Ylfa Guðrún Svafarsdóttir & Glanni frá Hofi 6,53 / Hofstorfan
13-16. Vera Evi Schneiderchen & Feykir frá Selfossi 6,53 / Equinics
13-16. Þorsteinn Björn Einarsson & Rjóður frá Hofi á Höfðaströnd 6,53 / Hofstorfan
13-16. Sunna Sigríður Guðmundsdóttir & Gæfa frá Flagbjarnarholti 6,53 / Storm Rider
17. Vignir Sigurðsson & Stjörnuþoka frá Litlu-Brekku 6,50 / Eques
18-19. Barbara Wenzl & Maístjarna frá Naustum III 6,43 / Þúfur
18-19. Guðmundur Karl Tryggvason & Bjarmi frá Akureyri 6,43 / Eques
20. Fanney Dögg Indriðadóttir & Griffla frá Grafarkoti 6,40 / Hrímnir
21. Sigrún Rós Helgadóttir & Hjari frá Hofi á Höfðaströnd 6,37 / Hofstorfan
22. Þórdís Inga Pálsdóttir & Veröld frá Dalsholti 6,33 / Hrímnir
23. Klara Sveinbjörnsdóttir & Brjánn frá Eystra-Súlunesi I 6,27 / Equinics
24. Jóhann Magnússon & Garri frá Bessastöðum 5,63 / Leiknir

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link