Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum Gæðingafimi á föstudaginn

  • 14. mars 2022
  • Fréttir
Það verður frítt inn í höllina fyrir áhorfendur

Föstudaginn 18.mars verður keppt í Gæðingafimi í Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum á Ingolfshvoli í Ölfusi.

Gæðingafimi er gríðarlega krefjandi keppnisgrein þar sem reynir á ganghæfileika og þjálfunarstig hests. Keppni í gæðingafimi er alltaf að verða sterkari og í framförum og knapar þurfa að koma vel undirbúnir til leiks.

Knapi sem vill keppa í Gæðingafimi í Meistaradeildinni getur keypt sér keppnisrétt sem 25 knapi. Skráning fer fram á [email protected] og lýkur á hádegi kl 12 miðvikudaginn 16.mars. Þátttökugjald er 50.000kr.
Hér er hægt að nálgast reglur um uppboðssæti meistaradeildar https://www.meistaradeild.is/leikreglur.html

Það verður mikið um dýrðir og spennandi sýningar og skemmtilega stemningu næskomandi föstudagskvöld í Ölfushöllinni. Frítt er inn í höllina fyrir áhorfendur. Húsið opnar kl. 17 Boðið verður upp á sunnlenska kjötsúpu og drykki í öllum stærðum og gerðum.

 

www.meistaradeild.is

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link