Úrslit frá Folaldasýningu Hrossaræktarfélags Flóahrepps

  • 14. mars 2022
  • Fréttir
Mætt voru til leiks að þessu sinni 16 folöld

Folaldasýning Hrossaræktarfélags Flóahrepps var haldinn þann 13. mars 2022 í Sleipnishöllinni að Brávölllum á Selfossi. Mætt voru til leiks að þessu sinni 16 folöld – 11 hryssur og 5 hestar.

Nokkur fjöldi áhorfenda var mættur í höllina, er öllum þakkað fyrir komuna. Æskulýðsnefnd Sleipnis seldi kaffiveitingar og er þeim þakkað kærlega fyrir þann þátt.

Dómarar voru þeir Kristinn Guðnason í Árbæjarhjáleigu og Vignir Siggeirsson í Hemlu. Þeir gáfu folöldunum tvær einkunnir, fyrir annars vegar byggingu og hinsvegar fyrir hreyfingar. Síðan voru eftir forkeppni valin þau 5 folöld til úrslita sem dómurum fannst vera best að þeirra mati. Eftir að dómarnir höfðu ráðið ráðum sínum í úrslitunum og raðað þessum 5 folöldum í sæti, lýsti Kristinn hverju folaldi fyrir sig og sagði frá því hvað þeir Vignir hefðu séð í hverju folaldi og rökstuddi þannig sætaröðunina.

Það fór þá þannig að í efsta sæti í hryssuflokki endaði Steinvör frá Syðra-Velli undan Fenri frá Feti og Spöng frá Syðra-Velli, brún að lit. Eigandi og ræktandi hennar er Jón Gunnþór Þorsteinsson

Í öðru sæti var Melódía frá Austurási undan Draupni frá Stuðlum og Óperu frá Nýjabæ, rauðblesótt, glófext að lit. Ræktendur hennnar eru Ragnhildur og Haukur í Austurási en eigendur Austurás-hestar ehf og Ásta Björnsdóttir.

Í þriðjan sæti var Sveifla frá Austurási undan Viðar frá Skeiðvöllum og Gleði frá Selfossi, jarpskjótt að lit. Ræktendur hennar eru Ragnhildur og Haukur í Austurási en eigandi Austurás hestar ehf

Í fjórða sæti var síðan Brá frá Brúnastöðum 2 undan Álfakletti frá Syðri-Gegnishólum og Freydís frá Brúnastöðum, móbrún að lit. Ræktandi og eigandi hennar er Ketill Ágústsson

Í fimmta sætinu frá síðan Líf frá Selfossi undan Skýr frá Skálakoti og Dropadís frá Miðey, brúntvístjörnótt að lit. Ræktendur og eigendur Jóhann Haraldsdóttir og Rúnar Andrésson

Hryssur
Sæti Folald Bygging Hreyfingar
1 Steinvör frá Syðra-Velli 8,5 8,5
2 Melódía frá Austurási 8,5 8,5
3 Sveifla frá Austurási 8,5 8,4
4 Brá frá Brúnastöðum 2 8 8,4
5 Líf frá Selfossi 8,5 7,5
Sigð frá Austurási 8,5 8
Lind frá Brúnastöðum 2 8 8
Ösp frá Oddgeirshólum 8 7,5
Erla frá Brúnastöðum 2 8 7,5
Syrpa frá Bólstað 7,5 7,5
Gná frá Oddgeirshólum 7,5 7,5
Sigurvegarar í hryssuflokki – Jón Gunnþór, Haukur og Ragnhildur

Í hestaflokki var það Mökkur frá Miðholti sem sigraði. Hann er undan Viðari frá Skör og Mökk frá Selfossi, brúnn að lit. Ræktendur og eigendur Jón S. Gunnarsson og Elínborg Högnadóttir.

Í öðru sætinu var síðan Hermóður frá Syðra-Velli undan Óskasteini frá Íbishóli og Perlu frá Syðra-Velli, jarpur að lit. Ræktendur og eigendur Jón Gunnþór Þorsteinsson og Björn Ingi Ólafsson

Í þriðja sætinu frá Hjörtur frá Skegggjastöðum undan Storm frá Herríðarhóli og Björt frá Kjartansstöðum, rauðblesóttur að lit. Ræktandi er Ellen Bergan en eigandi Skeggi Gunnarsson

Í fjórða sætinu var Ægir frá Selfossi undan Brimni frá Efri-Fitjum og Flugu frá Selfossi, bleikálóttur að lit. Ræktendi hans er Rut Margrét Guðjónsdóttir sem er einnig eigandi ásamt Ingva Tryggvasyni.

Og í fimmta sætinu var Sprettur frá Sandbakka undan Fenri frá Feti og Hrafntinnu frá Sandbakka, brúnn að lit. Ræktandi og eigandi Guðrún Jónsdóttir.

Hestar
Sæti Folald Bygging Hreyfingar
1 Mökkur frá Miðholti 8,5 8,4
2 Hermóður frá Syðra-Velli 8,5 8,5
3 Hjörtur frá Skeggjastöðum 8,2 8,3
4 Ægir frá Selfossi 8,3 8,2
5 Sprettur frá Sandbakka 8 7,8
Sigurvegarar í flokki hestfolalda – Jón S. ásamt Stellu Rún sem tók við verðlaunum fyrir hönd afa síns, Jón Gunnþór og Skeggi

Að lokum völdu síðan áhorfendur það folald sem þeim þótti best með kosningu. Það var Sveifla frá Austurási sem fékk flest atkvæðin í þeirri kosningu.

Ragnhildur og Haukur með verðlaun fyrir vinsælasta folaldið að mati áhorfenda
Tvær hryssur að leika sér í höllinni. Sú brúna er Steinvör frá Syðra-Velli sem vann hryssuflokkinn og hin er Ösp frá Oddgeirshólum 4
Dómarnir Kristinn í Árbæjarhjáleigu og Vignir í Hemlu ráða ráðum sínum.
Úrslitahryssur. Brúntvístjörnótt: Líf frá Selfossi, bakvið hana sést í Brá frá Brúnastöðum 2. Aftar eru jarpskjótt; Sveifla frá Austurási, rauðblesótt glófext; Melódía frá Austurási og sú brúna til vinstri er Steinvör frá Syðra-Velli
Sverrir Ágústsson var þulur og dómarnir Vignir og Kristinn sem er að lýsa folöldunum og hverju þeir leituðu eftir þegar þeir röðuðu þeim niður í sæti.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link