Staka með hæsta kynbótamatið

  • 14. mars 2022
  • Fréttir
Af 10 efstu hrossunum í kynbótamati eru það allt hryssur

Fyrr í dag kom út nýtt kynbótamat. Kynbótamatið var uppfært og leiðrétting fyrir landi tekin út.

Staka frá Hólum stendur efst í kynbótamati eftir útreikningana en hún er með 139 stig. Hún er undan Ösp frá Hólum og Trymbil frá Stóra-Ási. Þegar skoðaður er listinn yfir efstu 10 hrossin í kynbótamati eru það allt hryssur. Eiðfaxi ákvað því að fletta upp stóðhestunum sér og þar er efstur á lista Skýr frá Skálakoti með 134 stig.

Hér fyrir neðan er tveir listar annar með 10 efstu hrossunum í kynbótamati og hin með 10 efstu stóðhestunum

 

Gott er að hafa í huga þegar kynbótamatið er skoðað að þetta er spá um kynbótagildi hrossa og því þarft að hafa öryggið til hliðsjónar því eftir því sem öryggið er meira því hærra verður forspárgildi kynbótamatsins.

10 efstu hrossin í kynbótamati

Fæðingarnúmer Nafn BLUP Öryggi Fj.skráðra afkv. Fj. afkv. m. fullnaðardóm
IS2016258304 Staka frá Hólum 139 82% 1 0
IS2015201167 Álfamær frá Prestsbæ 138 82% 1 0
IS2015284871 Dimma frá Hjarðartúni 138 83% 0 0
IS2013282572 Hrönn frá Ragnheiðarstöðum 136 82% 2 0
IS2016258166 Eygló frá Þúfum 136 82% 1 0
IS2014201167 Þrá frá Prestsbæ 136 82% 1 0
IS2012201167 Skipting frá Prestsbæ 136 82% 0 0
IS2015258097 Bylgja frá Bæ 135 82% 0 0
IS2016287051 Valdís frá Auðsholtshjáleigu 135 81% 0 0
IS2013225112 Hófsóley frá Dallandi 135 82% 0 0
IS2003201166 Þóra frá Prestsbæ 135 87% 10 5
IS2014282577 Ísey frá Ragnheiðarstöðum 135 82% 0 0

 

10 efstu stóðhestarnir í kynbótamati

Fæðingarnúmer Nafn BLUP Öryggi Fj.skráðra afkv. Fj. afkv. m. fullnaðardóm
IS2007184162 Skýr frá Skálakoti 134 97% 505 77
IS2021152116 Eldklettur frá Prestsbæ 132 61% 0 0
IS2019101169 Engill frá Prestsbæ 132 60% 0 0
IS2021158170 Sóló frá Þúfum 132 59% 0 0
IS2020158166 Visit frá Þúfum 131 64% 0 0
IS2019187571 Ringó frá Austurási 131 64% 0 0
IS2013187660 Álfaklettur frá Syðri-Gegnishólum 131 86% 172 4
IS2019181522 Skuggi frá Sumarliðabæ 2 131 65% 0 0
IS2015186939 Seðill frá Árbæ 131 82% 10 0
IS2006187114 Spuni frá Vesturkoti 130 98% 541 154
IS2011187105 Draupnir frá Stuðlum 130 90% 272 13
IS2012188095 Kveikur frá Stangarlæk 1 130 83% 211 1
IS2017184978 Eldur frá Hvolsvelli 130 66% 11 0
IS2015184975 Pensill frá Hvolsvelli 130 81% 73 0
IS2021152119 Bláþráður frá Prestsbæ 130 60% 0 0
IS2016158166 Töfri frá Þúfum 130 81% 2 0
IS2016187108 Magni frá Stuðlum 130 82% 2 0
IS2018180610 Glaður frá Hemlu II 130 65% 0 0
IS2020182591 Nn frá Breiðholti í Flóa 130 61% 0 0
IS2015158302 Naskur frá Hólum 130 64% 0 0
IS2021164515 Kjarval frá Sámsstöðum 130 64% 0 0
IS2021156813 Auður frá Geitaskraði 130 60% 0 0
IS2020182319 Þrymur frá Hamarsey 130 64% 0 0

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link