Suðurlandsdeildin 2022 – Lið Efsta-Sels!
Fimmta liðið sem við kynnum til leiks af þeim fjórtán sem taka þátt í deildinni í vetur er lið Efsta-Sels.
Nú er önnur grein Suðurlandsdeildarinnar 2022 afstaðin, en það var Fjórgangur
ZO-ON.
Eftir jafna og feyki sterka forkeppni voru það lið BYKO og lið Árbæjarhjáleigu/Hjarðartúns sem stóðu uppi sem sigurvegarar kvöldsins jöfn að stigum.
Staðan í liðakeppninni eftir tvær fyrstu greinarnar er þannig að BYKO leiðir, þá Árbæjarhjáleiga/Hjarðartún og svo lið Krappa.
Við þökkum ZO-ON kærlega fyrir stuðninginn við kvöldið, sem og hestabraut Fjölbrautarskóla Suðurlands sem mannar með okkur mótin.
Suðurlandsdeildin er sýnd í beinni á Alendis TV!
UM Efsta-Sel
Efsta-Sel er farsælt hrossaræktarbú sem staðsett er í Rangárþingi ytra, eigendur þess eru Daníel Jónsson og Hilmar Sæmundsson. Efsta-Sel er ung ræktun sem snemma var tilnefnd sem hrossaræktarbú ársins. Efsta-Sel byrjar markvissa ræktun árið 2006 og var fyrst tilnefnt til ræktunarbúsverðlauna árið 2016, varð svo ræktunarbú ársins 2017 og var einnig tilnefnt til ræktunarbúsverðlauna árið 2020. Markmið Efsta-sels er að rækta fallega gæðinga sem allir geta notað.
Liðsstjóri liðs Efsta-Sels er Anna Ómarsdóttir en hún keppir sem áhugamaður í deildinni:
Nafn: Halldóra Anna Ómarsdóttir
Aldur: 34 ára
Starfstitill: Margt og mikið
Hvaða greinar stefnir þú á þátttöku í? Ég tek þátt í þeim greinum sem er talið að ég sé hestuð í að hverju sinni það er bara sameiginleg ákvörðun liðsmanna.
Eftirminnilegasta upplifun tengd hestamennsku? Þær eru margar en það var mjög gaman að ríða Öfga frá Káratanga sem er úr okkar ræktun í 6,38 í fjórgangs keppni aðeins 6.vetra síðasta sumar það var skemmtileg upplifun
Hvað gerir Suðurlandsdeildin fyrir þig? Hún heldur manni aðeins á tánum í þjálfuninni, ég öðlast meiri reynslu og þekkingu og bara líka alltaf gaman að hitta og kynnast nýju fólki.
Hvort sjáum við þig á vellinum eða í brekkunni á Landsmótinu á Hellu í sumar?
Vonandi á vellinum það væri óskandi en klárlega í brekkunni
Aðrir áhugamenn eru:
Nafn: Erlendur Árnason
Aldur: 50 ára
Starfstitill: Járningamaður og hrossaræktandi.
Hvaða greinar stefnir þú á þátttöku í? Þær sem mér verður sagt að vera í.
Eftirminnilegasta upplifun tengd hestamennsku? Lífið hefur meira og minna snúist um hesta og mörg augnablik sem eru eftirminnileg.
Hvað gerir Suðurlandsdeildin fyrir þig? Vonandi verður hún til þess að ég fari meira á bak og standi mig.
Hvort sjáum við þig á vellinum eða í brekkunni á Landsmótinu á Hellu í sumar? Reikna með að ég verði inni í vellinum að dæma eins og undanfarin sjö Landsmót.
Nafn: Kristín Hermannsdóttir
Aldur: 24 ára
Starfstitill: Háskólanemi
Hvaða greinar stefnir þú á þátttöku í? Parafimi og tölti
Eftirminnilegasta upplifun tengd hestamennsku? Úff of margar til að velja um.
Hvað gerir Suðurlandsdeildin fyrir þig? Brýtur upp veturinn.
Hvort sjáum við þig á vellinum eða í brekkunni á Landsmótinu á Hellu í sumar? Ég mun vera að njóta í brekkunni þetta árið.
Atvinnumenn liðsins eru:
Nafn: Valdís Björk Guðmundsdóttir
Aldur: 24 ára
Starfstitill: Tamningakona og reiðkennari
Hvaða greinar stefnir þú á þátttöku í? Sem flestum greinum
Eftirminnilegasta upplifun tengd hestamennsku? Pass
Hvað gerir Suðurlandsdeildin fyrir þig? Heldur mér á tánum
Hvort sjáum við þig á vellinum eða í brekkunni á Landsmótinu á Hellu í sumar? Stefni á að vera bæði í brekkunni og á vellinum
Nafn: Jón Óskar Jóhannesson
Aldur: 28 ára
Starfstitill: Vinnumaður hjá Valdísi
Hvaða greinar stefnir þú á þátttöku í? Óráðið
Eftirminnilegasta upplifun tengd
hestamennsku? Þegar ég reið heim úr
Laufskálarétt með Birni bónda á Vatnsleysu
Hvað gerir suðurlandsdeildin fyrir þig? Kemur manni af bæ af og til
Hvort sjáum við þig á vellinum eða í brekkunni á Landsmótinu á Hellu í sumar? Kemur í ljós með hækkandi sól, en allavegana í brekkunni
Nafn: Daníel Jónsson
Aldur: 45
Starfstitill: Allt og ekkert
Hvaða greinar stefnir þú á þátttöku í? Kemur bara í ljós
Eftirminnilegasta upplifun tengd hestamennsku? Margar eftirminnilegar
Hvað gerir Suðurlandsdeildin fyrir þig? Ekki neitt
Hvort sjáum við þig á vellinum eða í brekkunni á Landsmótinu á Hellu í sumar? Í tjaldi
Link á næsta viðburð Suðurlandsdeildarinnar, Fimmgang Fóðurblöndunnar, má nálgast hér:
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH