Úrslit frá Folaldasýningu Sóta
Strax eftir vetrarleika 3 fór fram sýning / keppni meðal folalda í eigu félagsmanna Sóta. 4 hestfolöld og 3 merfolöld mættu til leiks og voru hvert öðru glæsilegra svo dómurum þótti erfitt að gera uppá milli.
Sýningin fór fram í Celíus höllinni og komu folöldin beint úr kerrunni – inn í stóra gerði og svo beint í höllina. Ævar Örn og Sigurgísli röðuðu folöldunum í sæti og áhorfendur völdu svo glæsilegsta folald sýningarinnar en Blíður frá Breiðholti hlaut þann heiður – einróma!
Celcíus bræðurnir, Magnús og Gunnar og Högni Gunnars gáfu verðlaunin.
Að lokum var folatollur undir Kolgrím frá Breiðholti (sem ofantaldir gáfu) boðin upp og rann allur ágóði til Sóta. Það endaði með því að uppboðshaldArinn (Ari) bauð best og hreppti tollinn.
Úrslit urðu þannig:
Merfolöld:
1. Þruma frá Dýrfinnustöðum, brún, Eig: Jörundur Jökulsson
F: Skýr frá Skálakoti
M: Abba frá Hjarðarhaga
2. Stjarna frá Straumi, jarpstjörnótt. Eig: Vilhjálmur Þórðarson
F: Atlas frá Hjallanesi
M: Askja frá Húsafelli 2
3. Þoka frá Vatni, jörp (verður grá). Eig: Jörundur Jökulsson
F: Ísak frá Þjórsárbakka
M: Stuna frá Dýrfinnustöðum
4. Þula frá Vatni, bleik. Eig: Jörundur Jökulsson
F: Hávaði frá Haukholtum
M: Fura frá Pulu
Hestfolöld
1. Blíður frá Breiðholti, rauður. Eig: Högni, Magnús og Gunnar Gunnarssynir
F: Ljúfur frá Torfunesi
M: Mánadís frá Breiðholti
2. Þorri frá Vatni, rauðskjóttur (verður grár), Eig: Jörundur Jökulsson
F; Ísak frá Þjórsárbakka
M: Stuna frá Dýrfinnustöðum
3. Askur frá Álftanesi, brúnn. Eig: Tómas Guðmundsson
F; Vökull frá Efri-Brú
M.: Stika frá Efri-Brú
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH