Meistaradeild Líflands & æskunnar Svandís vann töltið

  • 20. mars 2022
  • Fréttir
Niðurstöður frá Hestalandstöltinu í Meistaradeild Líflands og æskunnar

Töltkeppnin var sterk í TM höllinni í Víðidalnum í dag og ljóst að þátttakendur höfðu lagt mikið á sig við undirbúning sinn og hesta sinna fyrir átök dagsins.

Fjörutíu knapar tóku þátt og suma munaði ekki um að mæta í eigin fermingu, keppa í tölti, ríða úrslit og halda svo fermingarveislu. Skipulagið alveg upp á 10!

Eftir forkeppnina leiddi Elva Rún Jónsdóttir á Straumi með 6,77 og keppa þau fyrir lið Hofsstaða/Sindrastaða. Í 2.-3. sæti voru þær Sara Dís Snorradóttir á Flugari frá Morastöðum úr liði Sportfáka / Fákalands Export og Svandís Aitken Sævarsdóttir á Fjöður frá Hrísakoti úr liði S4S með 6,67.

Inn í B-úrslitin voru þrír knapar jafnir og efstir inn. Það voru þau Fanndís Helgadóttir á Ötuli frá Narfastöðum, liði ZoOn, Ragnar Snær Viðarsson á Galdri frá Geitaskarði í liði Hrímnis/Hest.is og Herdís Bjög Jóhannsdóttir á Kvarða frá Pulu úr liði Goshesta með einkunnina 6,57. Það var einmitt Herdís Björg sem vann svo B-úrslitin með 6,94.

A-úrslitin voru mjög spennandi og hörkukeppni varð milli þeirra Svandísar og Elvu Rúnar. Að lokum var það þó Svandís sem vann glæsilegan sigur á Fjöður sinni með einkunnina 7,22 og Elva Rún varð önnur á Straumi með 7,11.

Liðið S4S hlutu liðaplattann í töltinu

 

Staðan í einstaklingskeppninni eftir 4 greinar:

Þórgunnur Þórarinsdóttir – 28,3 stig
Glódís Líf Gunnarsdóttir – 20 stig
Ragnar Snær Viðarsson – 19,8 stig
Guðný Dís Jónsdóttir – 18 stig
Svandís Aitken Sævarsdóttir – 18 stig

Staðan í liðakeppninni eftir 4 greinar:

S4S – 304,5 stig
Hrímnir/Hest.is – 262 stig
Hofsstaðir/Sindrastaðir – 234,5
Hestaval – 180 stig
ZoOn – 165 stig

Niðurstöður dagsins:

Tölt T1 – Ungmennaflokkur

A úrslit
Sæti Knapi Hross Litur Aðildarfélag knapa Einkunn
1 Svandís Aitken Sævarsdóttir Fjöður frá Hrísakoti Grár/brúnneinlitt Sleipnir 7,22
2 Elva Rún Jónsdóttir Straumur frá Hofsstöðum, Garðabæ Jarpur/milli-einlitt Sprettur 7,11
3-4 Sara Dís Snorradóttir Flugar frá Morastöðum Rauður/milli-stjörnótt Sörli 6,78
3-4 Helena Rán Gunnarsdóttir Hekla frá Hamarsey Jarpur/milli-stjörnótt Máni 6,78
5 Guðný Dís Jónsdóttir Roði frá Margrétarhofi Rauður/milli-nösóttglófext Sprettur 6,72

B úrslit
Sæti Knapi Hross Litur Aðildarfélag knapa Einkunn
6 Herdís Björg Jóhannsdóttir Kvarði frá Pulu Jarpur/dökk-einlitt Sprettur 6,94
7-8 Ragnar Snær Viðarsson Galdur frá Geitaskarði Brúnn/milli-einlitt Fákur 6,89
7-8 Fanndís Helgadóttir Ötull frá Narfastöðum Brúnn/mó-stjörnótt Sörli 6,89
9 Jón Ársæll Bergmann Eik frá Sælukoti Jarpur/milli-einlitt Geysir 6,78
10 Júlía Björg Gabaj Knudsen Svala frá Oddsstöðum I Grár/brúnneinlitt Sörli 6,72
11 Eva Kærnested Logi frá Lerkiholti Brúnn/milli-einlitt Fákur 6,44
12 Aðalbjörg Emma Maack Jara frá Árbæjarhjáleigu II Brúnn/mó-einlitt Þytur 6,28

Forkeppni
Sæti Knapi Hross Litur Aðildarfélag knapa Einkunn
1 Elva Rún Jónsdóttir Straumur frá Hofsstöðum, Garðabæ Jarpur/milli-einlitt Sprettur 6,77
2-3 Svandís Aitken Sævarsdóttir Fjöður frá Hrísakoti Grár/brúnneinlitt Sleipnir 6,67
2-3 Sara Dís Snorradóttir Flugar frá Morastöðum Rauður/milli-stjörnótt Sörli 6,67
4-5 Helena Rán Gunnarsdóttir Hekla frá Hamarsey Jarpur/milli-stjörnótt Máni 6,63
4-5 Guðný Dís Jónsdóttir Roði frá Margrétarhofi Rauður/milli-nösóttglófext Sprettur 6,63
6-8 Herdís Björg Jóhannsdóttir Kvarði frá Pulu Jarpur/dökk-einlitt Sprettur 6,57
6-8 Ragnar Snær Viðarsson Galdur frá Geitaskarði Brúnn/milli-einlitt Fákur 6,57
6-8 Fanndís Helgadóttir Ötull frá Narfastöðum Brúnn/mó-stjörnótt Sörli 6,57
9 Jón Ársæll Bergmann Eik frá Sælukoti Jarpur/milli-einlitt Geysir 6,50
10-12 Júlía Björg Gabaj Knudsen Svala frá Oddsstöðum I Grár/brúnneinlitt Sörli 6,43
10-12 Aðalbjörg Emma Maack Jara frá Árbæjarhjáleigu II Brúnn/mó-einlitt Þytur 6,43
10-12 Eva Kærnested Logi frá Lerkiholti Brúnn/milli-einlitt Fákur 6,43
13 Glódís Líf Gunnarsdóttir Goði frá Ketilsstöðum Brúnn/milli-einlitt Máni 6,40
14-19 Þórgunnur Þórarinsdóttir Huld frá Arabæ Brúnn/milli-einlitt Skagfirðingur 6,37
14-19 Hekla Rán Hannesdóttir Agla frá Fákshólum Jarpur/milli-einlitt Sprettur 6,37
14-19 Harpa Dögg Bergmann Heiðarsdóttir Þytur frá Stykkishólmi Brúnn/mó-einlitt Snæfellingur 6,37
14-19 Ragnar Bjarki Sveinbjörnsson Polka frá Tvennu Rauður/milli-blesótt Sprettur 6,37
14-19 Matthías Sigurðsson Dýri frá Hrafnkelsstöðum 1 Brúnn/dökk/sv.einlitt Fákur 6,37
14-19 Kolbrún Sif Sindradóttir Bylur frá Kirkjubæ Rauður/milli-einlitt Sörli 6,37
20 Dagur Sigurðarson Fold frá Jaðri Rauður/milli-tvístjörnóttglófext Geysir 6,33
21 Þorbjörg H. Sveinbjörnsdóttir Ísó frá Grafarkoti Brúnn/milli-tvístjörnótthringeygt eða glaseygt Sprettur 6,27
22 Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal Jökull frá Rauðalæk Grár/brúnneinlitt Þytur 6,20
23 Selma Leifsdóttir Sæla frá Eyri Bleikur/fífil-stjarna,nös eða tvístj. auk leista eða sokka Fákur 6,13
24-25 Auður Karen Auðbjörnsdóttir Eldar frá Efra – Holti Rauður/dökk/dr.einlitt Léttir 6,07
24-25 Sigurður Steingrímsson Ástríkur frá Hvammi Jarpur/dökk-einlitt Geysir 6,07
26-27 Eydís Ósk Sævarsdóttir Laufey frá Ólafsvöllum Rauður/sót-stjörnótt Hörður 6,00
26-27 Embla Moey Guðmarsdóttir Skandall frá Varmalæk 1 Brúnn/milli-tvístjörnótthringeygt eða glaseygt Borgfirðingur 6,00
28-29 Ásta Hólmfríður Ríkharðsdóttir Þengill frá Ytra-Dalsgerði Brúnn/milli-einlitt Sprettur 5,93
28-29 Kristín Karlsdóttir Ómur frá Brimilsvöllum Jarpur/milli-einlitt Fákur 5,93
30 Sigrún Helga Halldórsdóttir Gefjun frá Bjargshóli Brúnn/milli-einlitt Fákur 5,87
31 Unnur Erla Ívarsdóttir Víðir frá Tungu Brúnn/milli-stjörnótt Fákur 5,77
32 Lilja Dögg Ágústsdóttir Andvari frá Kvistum Brúnn/milli-einlitt Geysir 5,73
33 Lilja Rún Sigurjónsdóttir Sigð frá Syðri-Gegnishólum Bleikur/fífil-blesótt Fákur 5,67
34 Kolbrún Katla Halldórsdóttir Karen frá Hríshóli 1 Rauður/sót-einlitt Borgfirðingur 5,60
35 Friðrik Snær Friðriksson Embla frá Þjóðólfshaga 1 Bleikur/álótturstjörnótt Hornfirðingur 5,57
36 Kristín Eir Hauksdóttir Holake Ísar frá Skáney Grár/rauðurstjörnótt Borgfirðingur 5,50
37 Hildur Dís Árnadóttir Manía frá Breiðstöðum Jarpur/dökk-einlitt Fákur 5,37
38 Natalía Rán Leonsdóttir Stjörnunótt frá Litlu-Gröf Brúnn/mó-stjarna,nös eða tvístj. auk leista eða sokka Hörður 5,17
39 Svala Rún Stefánsdóttir Sólmyrkvi frá Hamarsey Bleikur/álóttureinlitt Fákur 4,27
40 Sigurbjörg Helgadóttir Elva frá Auðsholtshjáleigu Móálóttur,mósóttur/milli-einlitt Fákur 0,00

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link