Uppskeruhátíð Hrossaræktarfélags Flóahrepps

  • 22. mars 2022
  • Fréttir

Ræktendur hæst dæmdu kynbótahrossa Flóahrepps 2021, Ragnhildur Loftsdóttir og Haraldur Þorgeirsson ásamt formanni HRFF Atla Geir Jónssyni

Hæst dæmdu kynbótahrossin verðlaunuð

Laugardagskvöldið 19. mars síðastliðinn hélt Hrossaræktarfélag Flóahrepps árlega uppskeruhátíð sína á Kríunni. í boði var hlaðborð að hætti vertsins, saltað hrosskjöt og hrossabjúgu ásamt meðlæti.

Það voru um 40 manns sem mættu og gæddu sér á kræsingunum og fylgdust með því þegar stjórn félagsins afhenti verðlaunagripi til hæst dæmdu kynbótahrossa félagsmanna fyrir árið 2021.

Baldur Gauti meðstjórnandi kynnti fyrir veislugestum hvaða hross fengu verðlaun að þessu sinni með myndasýningu

 

Nánar verður fjallað um verðlaunahrossinn hér á komandi vikum í máli og myndum, en við munum fjalla um hvern aldursflokk fyrir sig í nokkrum færslum, svo fylgist vel með á næstunni.

Við munum byrja hér í þessari grein að fjalla um hvaða kynbótahross fengu útnefninguna; Hæst dæma hross Flóahrepps, óháð aldri (aldursleiðrétt). Og einnig hvaða kynbótahross fékk verðlaun fyrir að vera hæst dæmda kynbótahrossið í eigu félagsmanns.

Hæst dæmda kynbótahross Flóahrepps, stóðhestur og hryssa óháð aldrei, aldursleiðrétt
Þessi verðlaun gaf Flóahreppur og afhendist því kynbótahrossi sem hæstu aldursleiðréttu aðaleinkunn hlýtur á sýningarárinu, óháð hvaða aldur hrossið hefur. Veitt eru tvenn verðlaun í þessum flokki, fyrir hryssu annarsvegar og hinsvegar stóðhest. Sama hrossið getur eingöngu unnið til þessara verðlauna einu sinni.

Hæst dæmda hryssa Flóahrepps 2021

Hæst dæmda hryssan árið 2021 er:

 

Haraldur Þorgeirsson á Þjórsárbakka með verðlaun fyrir hæst dæmdu aldurleiðréttu hryssu Flóahrepps ásamt Atla Geir formanni Hrossaræktarfélagsins

 

Auðlind frá Þjórsárbakka

 

Hæst dæmdi stóðhestur Flóahrepps 2021

Hæst dæmdi stóðhesturinn árið 2021 er:

 

Ragnhildur Loftsdóttir í Austurási með verðlaun fyrir hæst dæmda stóðhest Flóahrepps ásamt Atla Geir formanni

 

Ræktendur hæst dæmdu kynbótahrossa Flóahrepps 2021, Ragnhildur Loftsdóttir og Haraldur Þorgeirsson ásamt formanni HRFF Atla Geir Jónssyni.

Hæst dæmda kynbótahrossið í eigu félagsmanns.

Þessi verðlaun voru fyrst afhent fyrir árið 2020, þau afhendast því kynbótahrossi sem er í eigu félagsmanns við sýningu og hæstu aðaleinkunn hlýtur. Styttuna gáfu Olil og Bergur í Syðri-Gegnishólum.

En árið 2021 hlýtur þessi verðlaun:

Helgi Jón Harðarson á Ragnheiðarstöðum er eigandi Dimmu í gegnum HJH Eignarhaldsfélag ehf

 

Haraldur á Þjórsárbakka tók við verðlaununum úr hendi Atla formanns fyrir hönd Helga Jóns á Ragnheiðarstöðum

 

Dimma frá Hjarðartúni

Eins og áður segir verður síðan á næstunni, fjallað um hver aldursflokk fyrir sig og hefjum við leik á 4. vetra hrossunum síðar í vikunni.

En þangað til minnum við á aðalfund félagsins sem haldinn verður í Þingborg, næstkomandi fimmtudagskvöld kl. 20:30. Hvetjum við félagsmenn til að mæta, nýir félagar eru sérstaklega boðnir velkomnir. Nánar er fjallað um aðalfundarboð í eldri fréttum hér á síðunni.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link