Líklegir til fyrstu verðlauna fyrir afkvæmi
Forkur frá Breiðabólsstað stendur eftur á listanum með 127 í kynbótamati en búið er að sýna 6 afkvæmi undan honum. Honum vantar því 9 afkvæmi upp á til að geta hlotið fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi.
Í nóvember á síðasta ári birti Eiðfaxi lista yfir þá hesta sem líklegir væru til að koma fram á næsta Landsmóti með afkvæmahópum. Þar sem kynbótamatið hefur verið endurreiknað hefur þessi listi nú aðeins breyst og hefur bæst inn á hann. Eiðfaxi birtir því hér fyrir neðan uppfærðan lista.
Til að stóðhestur hljóti fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi verður hann að uppfylla tvö skilyrði; 118 stig í kynbótamati og 15 dæmd afkvæmi. Í framhaldi af því að hross hljóta nú tvær aðaleinkunnir, með og án skeiðs, eru stóðhestum sem hljóta 118 stig eða meira í aðaleinkunn kynbótamats án skeiðs nú líka veitt afkvæmaverðlaun. Áfram verður þó miðað við aðaleinkunn kynbótamatsins þegar hestum er raðað í verðlaunasæti á stórmótum.
Eftirfarandi hestar eru líklegir til að hljóta fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi á Íslandi og koma fram á næsta Landsmóti með afkvæmahópum sínum. Þeim er raðað eftir aðaleinkunn kynbótamatsins eins og það stendur nú. Það er þó misjafnt hversu mörg afkvæmi þessara hesta þurfa að koma til dóms til að þeir nái lágmörkum en sumir hafa náð þeim nú þegar.
Hringur frá Gunnarsstöðum I og Hreyfill frá Vorsabæ II hafa nú þegar náð lágmörkum til fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi og hafa fengið afkvæmaorð birt í WorldFeng. Þeir verða svo verðlaunaðir á næsta Landsmóti, ef þeir standast enn kröfur til afkvæmaverðlauna.
Kolskeggur frá Kjarnholtum I og Auður frá Lundum II bætast nýir inn á listann. Báðir hafa þeir nú þegar náð lágmörkum til að hljóta fyrstu verðlaun við afkvæmi og verða verðlaunaðir á næsta Landsmóti, ef þeir standast enn kröfur til afkvæmaverðlauna. Kolskeggur á 21 sýnt afkvæmi og er með 120 stig í kynbótamati. Auður er með 110 stig í kynbótamati en 118 stig í aðaleinkunn án skeiðs og er búið að sýna 32 afkvæmi undan klárnum.
Hér fyrir neðan er listi af þeim hestum sem líklegir eru til að koma fram á Landsmóti en enn eiga sumir eftir að uppfylla fjölda afkvæma.
| Nafn | Uppruni | Ae. | Ae. án skeiðs | Fj. afkvæma |
| Forkur | Breiðabólsstað |
127 |
121 |
6 |
| Organisti | Horni I |
126 |
118 |
7 |
| Knár | Ytra-Vallholti |
123 |
114 |
12 |
| Dagur | Hjarðartúni |
121 |
121 |
6 |
| Hringur | Gunnarsstöðum I |
120 |
126 |
19 |
| Kolskeggur | Kjarnholtum I |
120 |
112 |
21 |
| Sólbjartur | Flekkudal |
119 |
115 |
9 |
| Hreyfill | Vorsabæ II |
116 |
128 |
21 |
| Lexus | Vatnsleysu |
115 |
120 |
7 |
| Auður | Lundum II |
110 |
118 |
32 |
Tekið skal fram að stóðhestar í öðrum löndum sem eru að nálgast eða hafa náð lágmörkum til fyrstu verðlauna fyrir afkvæmi eru ekki með á listanum. Listinn miðast við þá hesta sem gætu komið fram með afkvæmahóp á næsta Landsmóti.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH