Lið Húsasmiðjunnar
Nú er komið að sjöunda liðinu sem við kynnum til leiks af þeim fjórtán sem taka þátt í vetur, en það er lið Húsasmiðjunnar.
UM LIÐ HÚSASMIÐJUNNAR
Lið Húsasmiðjunar hefur verið með frá upphafi Suðurlandsdeildar eða 6 ár. Liðið hefur ávallt verið í topp fimm í liðakeppninni ásamt því að hafa sigrað liðakeppnina einu sinni.
Lið Húsasmiðjunar stefnir ávallt á sigur.
Liðsstjóri liðsins er Ólafur Þórisson, en hann keppnir sem atvinnumaður í deildinni:
Nafn: Ólafur Þórisson
Aldur: 44 ára
Starfstitill: Bóndi og tamningamaður
Hvaða greinar stefnir þú á þátttöku í? Ég stefni á að taka þátt í öllum greinum nema skeiði
Eftirminnilegasta upplifun tengd hestamennsku? Hestaferðir um hálendið, ávallt mikil upplifun.
Hvað gerir Suðurlandsdeildin fyrir þig? Suðurlandsdeildin hjálpar mér að halda áfram að þróa mína reiðmennsku og gera mig að betri reiðmanni og að ávallt að hægt er að gera betur og ná betri árangri.
Hvort sjáum við þig á vellinum eða í brekkunni á Landsmótinu á Hellu í sumar? Vonandi bæði.
Aðrir atvinnumenn liðs Húsasmiðjunnar eru:
Nafn: Davíð Jónsson
Aldur: 42 ára
Starfstitill: Verkamaður
Hvaða greinar stefnir þú á þátttöku í? Fjórgang og fimmgang
Eftirminnilegasta upplifun tengd hestamennsku? Þær eru svo margar
Hvað gerir Suðurlandsdeildin fyrir þig? Tækifæri til þess að prófa ný keppnishross
Hvort sjáum við þig á vellinum eða í brekkunni á Landsmótinu á Hellu í sumar? Vonandi á vellinum
Nafn: Sigursteinn Sumarliðason
Aldur: 43
Starfstitill: Tamningamaður
Hvaða greinar stefnir þú á þátttöku í? Þar sem ég tel mig hestaðann og kemst í liðið
Eftirminnilegasta upplifun tengd hestamennsku? Margar skemmtilegar
Hvað gerir Suðurlandsdeildin fyrir þig? Gerir bara gott fyrir mig
Hvort sjáum við þig á vellinum eða í brekkunni á Landsmótinu á Hellu í sumar? Bæði
Áhugamenn liðsins eru eftirfarandi:
Nafn: Sarah Maagaard Nielsen
Aldur: 40 ára
Starfstitill: Leikskólaleiðbeinandi
Hvaða greinar stefnir þú á þátttöku í? Ég stefni á að taka þátt í öllum greinum nema skeiði
Eftirminnilegasta upplifun tengd hestamennsku? Hestaferðir um hálendið
Hvað gerir Suðurlandsdeildin fyrir þig? Suðurlandsdeildin hjálpar mér að halda áfram að þróa mína reiðmennsku og gera mig að betri reiðmanni og að ávallt að hægt er að gera betur og ná betri árangri.
Hvort sjáum við þig á vellinum eða í brekkunni á Landsmótinu á Hellu í sumar? Brekkunni
Nafn: Katrín Ólína Sigurðardóttir
Aldur: 48 ára
Starfstitill: Ferðaþjónustubóndi
Hvaða greinar stefnir þú á þátttöku í? Allar nema fjórgang
Eftirminnilegasta upplifun tengd hestamennsku? Margar mjög góðar, erfitt að gera upp á milli
Hvað gerir Suðurlandsdeildin fyrir þig? Brýnir mig sem knapa
Hvort sjáum við þig á vellinum eða í brekkunni á Landsmótinu á Hellu í sumar? Brekkunni
Nafn: Jakobína Agnes Valsdóttir
Aldur: 43 ára
Starfstitill: Starfa hjá Dýralæknar Sandhólaferju
Hvaða greinar stefnir þú á þátttöku í? Stefnan er tekin á fjórgang og tölt
Eftirminnilegasta upplifun tengd hestamennsku? Margar góðar minningar
Hvað gerir Suðurlandsdeildin fyrir þig? Suðurlandsdeildin hvetur mig áfram í minni hestamennsku
Hvort sjáum við þig á vellinum eða í brekkunni á Landsmótinu á Hellu í sumar? Að minnsta kosti í brekkunni
Link á næsta viðburð Suðurlandsdeildarinnar, Fimmgang Fóðurblöndunnar, má nálgast hér:
https://www.facebook.com/events/898477214178093
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH