Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum Skeiðmót Meistaradeildarinnar á laugardaginn

  • 23. mars 2022
  • Fréttir
Þú getur keypt þér keppnisrétt sem 25. knapinn

Næsta mót Meistaradeildar verður haldið laugardaginn 26.mars á Brávöllum á Selfossi þegar knapar keppa í Gæðingaskeiði og 150m skeiði. Keppni hefst kl 11.

Að venju verður bein útsending frá Rúv2 og Alendis.

Knapi sem vill keppa í skeiði í Meistaradeildinni getur keypt sér keppnisrétt sem 25 knapi. Skráning fer fram á [email protected] og lýkur á hádegi kl.12:00 fimmtudaginn 25.mars.
Þátttökugjald er 50.000kr. Hér er hægt að nálgast reglur um uppboðssæti Meistaradeildar
https://www.meistaradeild.is/leikreglur.html.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link