Háspenna í kvöld í Áhugamannadeildar Spretts
Í kvöld fimmtudaginn 24 mars kl 19:00 er töltið á dagskrá í Equsana deildinni og strax ljóst að búast megi við hörkukeppni og flottum sýningum. Húsið opnar kl. 18:30 þar sem í boði verður hið víðfræga kótilettuveisla Sprettara. Við hvetjum alla til að mæta í höllina, njóta góðra veitinga og til að horfa á flottar sýningar.
Það eru 65 knapar sem etja kappi í kvöld og ljóst að nú á að safna stigum. Töltið er næst síðasta greinin í deildinni en á sunnudaginn 27 mars verður keppt í gæðingaskeiði á Sörlastöðum í Hafnarfirði kl 10:30.
Staðan í Equsanadeildinni 2022 er æsispennandi og það er ljóst að liðin munu tjalda öllu sem til er í hesthúsunum til að næla sér í stig á lokametrunum.
Í fyrra var töltkeppnin æsispennandi þar sem Erlendur Ari og Byr frá Grafarkoti báru sigur úr býtum en Katrín Sigurðardóttir og Ólína frá Skeiðvöllum urðu í öðru sæti. Þær stöllur mæta nú aftur til leiks en Erlendur Ari keppir ekki í deildinni í ár. Jöfn í 3-5 sæti í fyrra voru þeir Sævar Örn og Skráma frá Skjálg, Ríkharður Flemming og Auðdís frá Traaðarlandi og Karl Áki og Skál frá Skör. Karl Áki mætir aftur til leiks á Skál en Ríkharður og Sævar reyna fyrir sér á nýjum hestum.
Í stigakeppninni þegar tvær greinar eru eftir leiðir lið Heimahaga með 331,5 stig, lið Vagna og Þjónustu eru þar rétt á eftir með 326,5 stig og Stjörnublik í þriðja sæti með 297 stig
Í einstaklingskeppninni er það Ríkharður Flemming Jensen sem leiðir með 24 stig, í öðru sæti eru Katrín Sigurðardóttir með 20 stig og Hermann Arason með 19 stig.
Það er óhætt að segja að það verði háspenna í Samskipahöllinni í kvöld.
Húsið opnar kl. 17:30 og sem í fyrri mótum mun einvala lið Sprettara sjá um að reiða fram veitingar í Veislusalnum okkar á góðu verði.
Við hvetjum alla áhugamenn um hestamennsku að taka kvöldið frá, koma í Sprettshöllina, njóta og horfa á spennandi keppni. Aðgangur er frír. Þeir sem ekki eiga heimangengt er bent á frábæru útsendingarnar á Alendistv.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH