Fjölbreyttur og spennandi dagur með úrvalshópi reiðkennara

  • 25. mars 2022
  • Fréttir

Eyjólfur Ísólfsson tamningameistarfi og aðjúnkt prófessor í reiðlist við SLU eftir æfinga, ásamt knöpunum Ólafi Andra Guðmyndssyni, Aðalheiði Önnu Guðjónsdóttur, Reyni Erni Pálmasyni og Viðari Ingólfssyni.

Viðtal við Telmu L. Tómasson, einn af skipuleggjendum dags reiðmennskunnar og stórsýningar Fáks

Stórhátíð er í Fáki á morgun, laugardag 26. mars, en haldinn verður Dagur reiðmennskunnar og Stórsýning Fáks er svo um kvöldið. Telma Tómasson hefur verið að undirbúa þennan dag ásamt fleiri fáksfélögum nú í heilt ár en Fákur hélt álíka sýningu í samvinnu við Hólaskóla og nokkra af okkar helstu reiðkennurum og sýnendum árið 2019. Dagurinn hefst á morgun kl. 11:00 með kennslusýningu reiðkennaraefna frá Háskólanum á Hólum. Eiðfaxi heyrði í Telmu sem fylgdist með æfingum í dag. „Þetta verður alger veisla. Ég fylgdist með æfingum á kennslusýningum í dag, mjög fjölbreytt viðfangsefni og margt sem kemur á óvart. Kennaraefni Háskólans á Hólum ríða á vaðið en farið verður yfir þjálfun gangtegunda,“ segir Telma en þetta er mjög öflugur hópur 16 nemenda.

Eftir hádegishlé verður Anton Páll Níelsson með kennslusýninguna „Samskipti manns og hests“ ásamt nemendum sínum. „Anton er einn vinsælasti reiðkennari landsins og með honum verða þeir Hákon Dan Ólafsson og Ólafur Andri Guðmundsson. Á eftir Antoni kemur Mette Mannseth tamingameistari og yfirreiðkennari á Hólum með mjög spennandi kennslusýningu en hún fer oft óhefðbundnar leiðir, er hugmyndarík í þjálfun og ætlar hún að fara yfir æfingar sem styrkja og liðka hestinn og auka einbeitingu hans,“ bætir Telma við. Kennslusýning Mettu hefst kl 14:50 en nákvæma dagskrá er hægt að sjá HÉR. Sigurbjörn Bárðarson tamningameistari og landsliðsþjálfari kemur með Flóka frá Oddhóli og fer yfir jafnvægi og tímasetningar ábendinga, en það er eitt af því sem veitist hestamönnum oft hvað erfiðast að ná tökum á.

Kl. 16:10 er Eyjólfur Ísólfsson með kennslusýninguna „Svo er hestur sem hann er hafður“ en það heyrðist á Telmu að sýning hans yrði mjög áhugaverð. „Eyjólfur er tamningameistari og aðjúnkt prófessor í reiðlist við Landbúnaðarháskólann í Svíþjóð (SLU). Hann verður með magnaða kennslusýningu, þar sem hann fer yfir marga þætti, bæði við hönd og með aðstoð knapa, þeirra Viðars Ingólfssonar, Ólafs Andra Guðmundssonar, Reynis Arnar Pálmasonar og Aðalheiðar Önnu Guðjónsdóttur. Aðalheiður Anna mætir með Flóvent frá Breiðstöðum en þau vöktu mikla lukku í gæðingafimi Meistaradeildarinnar. Áhugavert samtal um þjálfun og uppbyggingu fer fram á milli Eyjólfs og Aðalheiðar Önnu,“ segir hún en afreksknapinn Árni Björn Pálsson lokar síðan þessum frábæra kennslusýningardegi með töltþjálfun. „Hann gefur okkur innsýn í þjálfunarstund og mætir með unga 6 vetra hryssu, Ómsdóttur, sem heitir Kastanía frá Kvistum. Árni Björn er einn okkar fremsti sýningarknapi og það verður fróðlegt að sjá og heyra hans framlag,“ segir Telma og bætir við að þetta sé afar áhugaverður dagur í alla staði sem enginn hestamaður ætti að missa af.

Stórsýning Fáks skartar síðan mörgum stórstjörnum og hefst sýningin klukkan 20:30.

Hægt er að tryggja sér miða á tix.is

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link