Hrossaræktin 2012 komin út
Ársrit hrossaræktarinnar „Hrossaræktin 2012“ er komin út. Í bókinni er fjallað um tíu efstu hross í öllum aldursflokkum, öll ræktunarbú sem tilnefnd voru til ræktunarverðlauna í ár, heiðursverðlaunahryssur- og stóðhesta. Skýrslu hrossaræktarráðunautar BÍ og ársskýrslu Félags hrossabænda er að finna í ritinu ásamt umfjöllun um kynbótasýningar erlendis. Einnig er að finna ítarlegar greinar um sögu Stóðhestastöðvar ríkisins og hrossaræktarinnar á Stóra-Hofi, auk skemmtilegs viðtals við Daníel Jónsson knapa.
Hrossaræktin fæst í hestavöruverslunum um land allt, auk þess sem hægt er að kaupa hana í gegnum vefverslanir þeirra. Bókin er 324 síður og forsíðuna prýðir hæst dæmda hross ársins, Hrannar frá Flugumýri II og knapi hans Þorvaldur Árni Þorvaldsson, en forsíðumyndina tók Henk Peterse. Útgefandi bókarinnar er Hrossarækt ehf sem einnig rekur hestafréttavefinn www.isibless.is, stóðhestavefinn www.stodhestar.com og gefur út að auki út árlega stóðhestabók.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH