Jarl frá Litla-Dal valinn glæsilegasta folaldið
Kristín og Jónas Litla-Dal með verðlaunin fyrir glæsilegasta folaldið að mati áhorfenda.
Folaldasýning Náttfara 2022 fór fram síðastliðin laugardag á Melgerðismelum. Mikill áhugi var fyrir sýningunni og voru 42 folöld skráð til leiks, 17 hestar og 24 hryssur auk þess sem einn villiköttur mætti eins og tíðkast í öllum stærri keppnum. Sem fyrr var það Eyþór Einarsson ráðunautur sem dæmdi folöldin bæði fyrir sköpulag og hæfileika
Folöld undan Hnokka frá Eylandi og Pensli frá Hvolsvelli voru áberandi í gær en tveir efstu hestarnir voru undan Hnokka og Pensill átti hestinn í þriðja sæti auk þess að eiga hryssur í fyrsta og þriðja sætinu.
Það var ánægjulegt að sjá hve margir áhorfendur mættu og sumir komu langt að eins og t.d. Magnús í Kjarnholtum sem mættur var með flugi til að berja herlegheitin augum. Við þökkum öllum þeim sem aðstoðuðu við sýninguna kærlega fyrir og ekki síst Líflandi sem styrkti okkur með vinningum. Hér fyrir neðan eru úrslitin og fljótlega koma inn fleiri myndir af sýningunni.

Jarl frá Litla-Dal

Svarti-Pétur frá Eylandi

Frigg frá Litla-Dal

Verðlaunahafar í flokki hestfolalda. Jón Elvar Hrafnagili 1 og 2 sæti og Brynjar Skúlason 3 sæti

Verðlaunahafar í flokki hryssna. Jónas og Kristín Litla-Dal 1 og 3 sæti og Gunnhildur Erla 2 sæti
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH