Alendis sýnir beint frá kynbótasýningum sumarsins

  • 5. apríl 2022
  • Fréttir

Karvel L Karvelsson, framkvæmdastjóri RML, og Ragnar Bragi Sveinsson, rekstrarstjóri Alendis, við undirritun samningsins

Alendis og Ráðgjafarmiðstöð Landbúnaðarins endurnýja samstarf sitt

Alendis og RML hafa framlengt samstarfi sínu við framleiðslu og útsendingar frá kynbótasýningum árið 2022. Streymt var frá öllum kynbótasýningum vor/sumar 2021 og verður það aftur gert í ár. Sýningarnar eru síðan aðgengilegar á vefsíðu eða í smáforriti Alendis.

„Gerð var tilraun á þessu verkefni í fyrrasumar, árið 2021 og höfum við einungis heyrt einróma lof um samstarfið. Við erum því gífurlega spennt að geta boðið áskrifendum Alendis aftur, upp á kynbótasýningar á vefnum hjá okkur. Í sumar verða einnig teknar myndir af hrossum í sköpulagsdómi, en það er gert sem tilraunaverkefni og verður tekinn mynd af öllum hrossum líkt og RML greindu frá í tilkynningu á vef sínum, rml.is.“ kemur fram í tilkynningu frá Alendis.

Búið er að gefa út sýningaáætlun fyrir sumarið 2022 og alls eru þetta 18 sýningar víðsvegar um landið frá 23. maí til 19. ágúst. Fyrsta kynbótasýning sumarsins verður á Hellu dagana 23. til 27.maí.

Hægt er að sjá sýningaáætlunina HÉR

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link