Opið Páskatölt Dreyra
Þá er komið að því.
Við ætlum að endurvekja Páskatöltið okkar. Mótið verður haldin 18.april.
Boðið verður upp á Tölt T7 fyrir barnaflokk, unglingaflokk, ungmennaflokk og 2. flokk. Tölt T3 verður boðið upp fyrir 1. flokk.
Skráningargjald fyrir börn og unglingar eru 1.500 kr og ungmenna og fullorðinsflokkar 4.000 kr.
Skráningarfrestur verður frá 10.april til 15.april kl. 00 og fer skráningin fram á sportfengur.com.
Endilega senda kvittun á [email protected]
Kveðja
Mótanefnd Dreyra
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH