Dymbilvikusýning Spretts
Sýningin verður þann 13.apríl næstkomandi og verður haldin, eins og undanfarin ár, létt keppni milli nágranna hestamannafélaganna um flottustu ræktunarhesta sem hafa fæðst hjá félagsmönnum í hverju félagi.
Ýmis ræktunarbú munu koma fram með hross, yngri kynslóðin í Spretti sýnir sig, Íþróttafólk Spretts verður heiðrað o.fl. o.fl. o.fl.
Húsið opnar kl 18:00. Hægt verður að kaupa mat og drykk en gleðistund verður á barnum milli kl:18:00-19:00. Barinn verður síðan opinn að sýningunni lokinni
Miðaverð inn á sýninguna er 2000 kr og verður selt við innganginn.
Nánar um viðburðinn HÉR
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH