Efast um hæfi Sigríðar Björnsdóttur

  • 22. nóvember 2012
  • Fréttir
Helgi Sigurðsson, dýralæknir, segist hugsa til þess með hryllingi ef menn hættu að raspa tennur í reiðhrossum sínum.

Helgi Sigurðsson, dýralæknir, skrifar harðorða grein um tannraspanir í Hestablaðið, sem kemur út í dag. Hann segist hugsa til þess með hryllingi ef menn hættu að raspa tennur í reiðhrossum sínum og hverfa þar með áratugi aftur í tímann. Hann segir meðal annars:

„Það skýtur því skökku við þegar dýralæknir hrossasjúkdóma hefur skyndilega herferð gegn tannröspunum, viðurkenndri aðferð um allan heim og augljós fyrirbyggjandi þeim sem aðeins hugsa um þessa hluti…. Dýralæknir hrossasjúkdóma getur ekki haft þessa skoðun og ef hún heldur sig við hana er augljóst í mínum huga að hún er ekki fær um að gegna þessu starfi.“

Hægt er að gerast áskrifandi í síma 511-6622.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link