Íslandsmeistarinn fimmti
Þegar árangur ársins í töltkeppni í opnum flokki hér á landi er skoðaður þá kemur í ljós einungis einn knapi kemur oftar en einu sinni fyrir á listanum, en það er Hinrik Bragason. Hinrik á besta árangur ársins innanlands á Smyrli frá Hrísum en það er árangur þeirra á Reykjavíkurmeistaramóti sem skila þeim efsta sæti listans. Hitt hrossið sem Hinrik reið og er á listanum yfir besta árangur ársins er Stórval frá Lundi en þeir félagar verma sjöunda sætið.
Athygli vekur að Íslandsmeistarinn í tölt er einungis í fimmta sæti, en annan besta árangur ársins hér á landi á Leó Geir og Krít frá Miðhjáleigu. Þriðju eru þeir Sigurbjörn Bárðarson og Jarl.
Eins og flestir muna þá sigraði Jóhann R. Skúlason töltkeppni HM2013 með einkunnina 9,61 en hann náði þeim árangri utan landsteinana og er því ekki með á þessum lista.
Listinn yfir hæstur dóma í tölti á Íslandi (heimild:WF):
1. Hinrik Bragason Smyrill frá Hrísum 8,57 RM 2013
2. Leó Geir Arnarson Krít frá Miðhjáleigu 8,23 ÍM 2013
3. Sigurbjörn Bárðarson Jarl frá Mið-Fossum 8,23 ÍM 2013
4. Viðar Ingólfsson Vornótt frá Hólabrekku 8,20 ÍM 2013
5. Árni Björn Pálsson Stormur frá Herríðarhóli 8,07 RM 2013
6. Jakob Svavar Sigurðsson Eldur frá Köldukinn 8,00 FM2013
7. Hinrik Bragason Stórval frá Lundi 7,90 ÍM 2013
8. Þorvaldur Árni Þorvaldsson Stjarna frá Stóra-Hofi 7,90 RM 2013
9. Bylgja Gauksdóttir Grýta frá Garðabæ 7,80 ÍM 2013
10. Eyjólfur Þorsteinsson Hlekkur frá Þingnesi 7,73 RM 2013
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH