Miðasala hafin á Allra Sterkustu

  • 14. apríl 2022
  • Fréttir
Stóðhestavelta landsliðsins verður einnig á sínum stað en sala hefst þriðjudaginn 19. apríl.

Allra sterkustu á vegum LH verður haldið í TM reiðhöllinni í Víðidal þann 20. apríl næstkomandi kl. 19:30. Húsið opnar kl. 17:00 og er mótið til styrktar Landsliði Íslands í hestaíþróttum.

„Allra sterkustu fjórgangshestar landsins
U21-landsliðsknapar með sýningaratriði
Allra sterkustu slaktaumatöltarar landsins
Magnaðar kynbótahryssur
Allra sterkustu fimmgangshestar landsins
Geggjaðir stóðhestar
Allra sterkustu tölthestar landsins“

Miðasala er hafin á viðburðinn en hægt er að kaupa miða HÉR. Verð er 4.000 kr.

Stóðhestavelta landsliðsins verður einnig á sínum stað en sala hefst þriðjudaginn 19. apríl. Stóðhestaveltan er til styrktar landsliði Íslands í hestaíþróttum. Hver keyptur miði veitir aðgang fyrir eina hryssu á árinu 2022 undir einn af þeim frábæru gæðingum sem eru í pottinum.  Dregið verður úr seldum miðum og verður drátturinn auglýstur síðar.

Hægt er að skoða hér fyrir neðan hestana sem hafa verið kynntir til leiks

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link