Úrslit töltmóts Smára, Trausta og Loga

  • 20. apríl 2011
  • Fréttir
Úrslit töltmóts Smára, Trausta og Loga

Miðvikudagskvöldið 20 apríl var haldið sameiginlegt töltmót hjá hestamannafélögunum Smára, Loga og Trausta í reiðhöllinni á Flúðum. Ágætis þátttaka var á mótinu og þakkar mótsstjórn keppendum, áhorfendum, dómurum og öðrum sem að mótinu komu kærlega fyrir skemmtilegt kvöld.

Mjótt var á munum og nokkrum sinnum þurfti að varpa hlutkesti til að skera úr um sætaröðun. Barnaflokkinn sigraði Eva María Larsen á Brá frá Fellskoti, glæsilegt par þar á ferð. Jöfn í 1-2 sæti í unglingaflokki voru smárafélagarnir Gunnlaugur Bjarnason og Sigurbjörg Bára Björnsdóttir en að hlutkesti loknu sigraði Gunnlaugur.

Efst eftir forkeppni í 2 flokki fullorðinna var Þórey Helgadóttir á Fræg frá Flekkudal, fast á hæla hennar kom Sigurður Sigurðarson sem að lokum landaði sigri í úrslitunum á Þrumu frá Langholtskoti. Hart var einnig barist í 1 flokki fullorðinna þar sem Knútur Ármann stóð efstur eftir forkeppni en eftir jafna og mikla keppni í úrslitunum endaði Sólon Morthens eftstur á Hnoss frá Torfastöðum.

 

Meðfylgjandi eru helstu úrslit

 

 

A- úrslit Barnaflokkur

1    Eva María Larsen / Brá frá Fellskoti LOGI 4,83   
2    Karitas Ármann / Björgvin frá Friðheimum LOGI 4,75   

3    Sigríður Magnea Kjartansdóttir / Baugur frá Bræðratungu LOGI 3,42   
         


 

A-úrslit Unglingaflokkur
1    Gunnlaugur Bjarnason / Tvistur frá Reykholti  SMÁRI 5,25  vann með hlutkesti

2    Sigurbjörg Bára Björnsdóttir / Silfurdís frá Vorsabæ II SMÁRI 5,25   

3    Kjartan Helgason / Þöll frá Hvammi I SMÁRI 5,17   

4    Katrín Sigurgeirsdóttir / Prins frá Fellskoti LOGI 5,00  vann með hlutkesti

5    Marta Margeirsdóttir / Krummi frá Sæbóli LOGI 5,00   
         


 

A-úrslit Fullorðnir 2. flokkur
1    Sigurður Sigurjónsson / Þruma frá Langholtskoti SMÁRI 6,08   

2    Þórey Helgadóttir / Frægur frá Flekkudal SMÁRI 5,75   

3    Ragnar Ólafsson / Öðlingur frá Arnarhóli LOGI 5,42   

4    Ingimar Ásgeirsson / Sylgja frá Högnastöðum 2 SMÁRI 4,92   

5    Jóhann Pétur Jensson /Krummi frá Skálholti LOGI 4,83  vann með hlutkesti

6    Rosemarie Þorleifsdóttir / Hetja frá Vestra-Geldingaholti SMÁRI 4,83   
         


 

B-úrslit Fullorðnir 1. flokkur 

1    Grímur Sigurðsson / Glaumur frá Miðskeri SMÁRI 5,75   

2    Björn Jónsson / Blossi frá Vorsabæ II SMÁRI 5,67   

3    Linda Dögg Snæbjörnsdóttir / Drottning frá Efsta-Dal II TRAUSTI 5,58   

4    Ingvar Hjálmarsson / Hringur frá Húsatóftum 2 SMÁRI 5,50   

5    Sigvaldi Lárus Guðmundsson / Lokkur frá Fellskoti LOGI 5,25   
         


 

A-úrslit Fullorðnir 1. flokkur  

1    Sólon Morthens / Hnoss frá Torfastöðum LOGI 6,83   

2    Hjálmar Gunnarsson / Breyting frá Haga I SMÁRI 6,67   

3    Guðmann Unnsteinsson / Prins frá Langholtskoti SMÁRI 6,17   

4    Grímur Sigurðsson / Glaumur frá Miðskeri SMÁRI 6,08  vann með hlutkesti

5    Knútur Ármann / Bríet frá Friðheimum LOGI 6,08   

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link