Skeifudagurinn í dag á Mið-Fossum
Hestamannafélag nemenda LbhÍ, Grani býður til uppskeruhátíðar búfræði nemenda sem stundað hafa hestamennsku áfanga við skólann. Keppt er um Morgunblaðsskeifuna og Gunnarsbikarinn. Nemendur sýna afrakstur vetrarins en þau temja tryppi ásamt því að þjálfa tamið hross.
Þá taka nemendur hestafræðibrautar einnig þátt og að lokinni keppni og sýningu verður boðið til kaffis og dregið í hinu rómaða stóðhestahappadrætti Grana.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH