Skráning á kynbótasýningar hefst á morgun
Opnað verður fyrir skráningar á kynbótasýningar á morgun, þriðjudaginn 3. maí kl. 10:00. Skráning og greiðsla fer fram á heimasíðu Ráðgjafarmiðstöð Landbúnaðarins. Nánari leiðbeiningar varðandi skráningu er að finna HÉR.
Verð fyrir fullnaðardóm er 31.350 kr. en 24.000 kr. fyrir annað hvort sköpulags- eða hæfileikadóm. Eins og áður þarf að ganga frá greiðslu um leið og hrossið er skráð. Hrossið á að birtast strax inn á viðkomandi sýningu um leið og það hefur verið skráð ef það gerist ekki er rétt að kanna hvort eitthvað hafi farið úrskeiðið við skráninguna.
Hér fyrir neðan er listi með hvaða sýningastaðir eru í boði og lokaskráningardagur á þær sýningar. RML áskilur sér þann rétt að fella niður sýningar, fækka dögum og sameina sýningar ef ekki er næg skráning á einhverja ákveðna sýningu en lágmarksfjöldi er 30 hross.

Sýningaáætlun vorsins. Mynd: RML
Frekari upplýsingar um skráningar á kynbótasýningar vorsins er hægt að sjá á heimasíðu RML.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH