Bilun í skráningarkerfi kynbótahrossa
Eins og fram hefur komið kom upp bilun í skráningakerfi kynbótasýninga í morgun. Unnið hefur verið að viðgerð og átti að opna aftur fyrir skráningar kl. 13:00 í dag en hefur nú verið gefið út að ekki verði opnað fyrir skráningar fyrr en kl. 10:00 miðvikudaginn 4. maí.
RML biðst velvirðingar á óþægindum sem þetta hefur valdið.
Náðist að skrá 123 hross (þegar þetta er skrifað) á vorsýningarnar þegar opnaðist fyrir skráningu í morgun. Enn eiga eftir að bætast við nokkrar skráningar sem fóru í gegn en hafa ekki enn birst á WorldFeng
Að gefnu tilefni viljum við benda á að Eiðfaxi sér ekki um skráningar kynbótahrossa eða skráningarkerfið. Þeir sem eiga í erfiðleikum með að skrá er bent á að hafa samband við Ráðgjaramiðstöðu Landsbunaðarins, www.rml.is
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH