Lokakvöld KS deildarinnar á föstudaginn

  • 3. maí 2022
  • Fréttir
Mette leiðir einstaklingskeppnina og Leiknisliðið liðakeppnina

Spennan magnast fyrir lokakvöldi Meistaradeildar KS enþað fer fram föstudaginn 6.maí í Reiðhöllinni Svaðastöðum þar sem keppt verður í tölti og flugskeiði í gegnum höllina. Keppni hefst kl 18:30 á tölti.

Mette Mannseth leiðir einstaklingskeppnina með 131 stig. En á eftir henni kemur Védís Huld með 121,5 stig. Rétt á eftir þeim er Bjarni Jónasson með 102 stig.

Þó nokkrar breytingar urði á stöðunni í liðakeppninni en eftir skeiðmótið stendur Leiknisliðið efst, en þau hlutu liðaplattann í bæði gæðingaskeiði og 150m skeiði.

Það er því ljóst að það er gríðarlega skemmtileg og spennandi töltkeppni framundan og fljótustu hestar landsins munu mæta á lokamót deildarinnar.

Staðan í einstaklingskeppninni
1. Mette Moe Mannseth 131 stig
2. Védís Huld Sigurðardóttir 121,5 stig
3. Bjarni Jónasson 102 stig
4. Konráð Valur Sveinsson 99,5 stig
5. Guðmar Freyr Magnússon 79,5 stig
6. Pétur Örn Sveinsson 72 stig
7. Fredrica Fagerlund 68 stig
8. Gísli Gíslason 67 stig
9. Vera Schneiderschen 63 stig
10. Elvar Einarsson 60 stig

Staðan í liðakeppninni
1. Leiknisliðið 287 stig
2. Íbishóll 272 stig
3. Þúfur 265 stig
4. Storm Rider 261,5 stig
5. Hrímnir 243,5 stig
6. Equinics 208,5 stig
7. Eques 179,5 stig
8. Hofstorfan 143 stig

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link