Hættur leynast víða
Eigendur og umráðamenn hesta eru minntir á skyldur sínar til daglegs eftirlits með hrossum á útigangi. Í tilkynningu frá Matvælastofnun segir að tryggja þurfi hrossum aðgang að fóðri til framleiðslu og viðhalds, vatni of salti. Þar sem ekki er náttúrulegt skjól í umhverfinu þurfa hross að hafa aðgang að manngerðum skjólveggjum.
„Sérstaklega ber að gæta að því að hross séu í öruggum girðingum og standi í heyi í kringum áramótin þegar hætta er á að þau fælist vegna flugelda. Þá þarf einnig að hafa sérstakt eftirlit með hrossum á húsi og dempa hávaða eins og hægt er.“ Rétt er að benda á upplýsingar er varða dýrahald og flugelda hér.
Morgunblaðið segir frá hryssu sem fannst fyrir nokkra tilviljun frosin föst í miðri tjörn í haga. Hryssunni var bjargað í gær og mun vera að braggast skv. frétt sem nálgast má hér. Hætturnar geta sannarlega leynst víða.
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing
Landsliðsteymi Danmerkur fyrir árið 2027 klárt