Reykjavíkurmót Fáks

  • 21. apríl 2012
  • Fréttir
Reykjavíkurmót Fáks

Opna WR* Reykjavíkurmót Fáks fer fram í Víðidal dagana 3.-6.maí næstkomandi.

Keppt verður í eftirtöldum flokkum ef næg þátttaka fæst, að öðrum kosti áskilur mótanefnd sér rétt til að fella niður eða sameina einstaka flokka. B-úrslit verða riðin í þeim flokkum sem ná 20 eða fleiri skráningum:

  • Barnaflokkur: 4g, tölt
  • Unglingaflokkur: 4g, 5g, tölt, slaktaumatölt og gæðingaskeið
  • Ungmennaflokkur: 4g, 5g, tölt, slaktaumatölt og gæðingaskeið
  • 2.flokkur: 4g, 5g, tölt
  • 1.flokkur: 4g, 5g, tölt, slaktaumatölt og gæðingaskeið
  • Meistaraflokkur: 4g, 5g, tölt, slaktaumatölt og gæðingaskeið
  • 100 m skeið

Skráning

Skráning fer fram í Reiðhöllinni þriðjudaginn 24.apríl milli kl. 19:00 og 21:00. Hægt er að mæta á staðinn eða hringja í eitthvað af neðantöldum símanúmerum. Einnig verður hægt að skrá með því að senda tölvupóst á netfangið [email protected], gegn því að allar upplýsingar komi fram ásamt kortanúmeri og símanúmeri viðkomandi, fram til kl. 23:59 á þriðjudaginn 24.apríl. Eftir það verður ekki undir neinum kringumstæðum tekið við skráningum og skráningar sem berast eftir auglýstan frest álitnar ógildar.

  • 567 0100 – Vodafone
  • 567 2166 – Vodafone
  • 898 8445 – Vodafone
  • 897 4467 – Síminn
  • 864 0505 – Síminn
  • 697 3630 – Nova

Gjöld eru sem hér segir:

Skráning per grein fullorðnir og ungmenni – kr. 5.000 (skuldlausir Fáksfélagar kr. 4.000)

Skráning per grein börn og unglingar – kr. 3.500 (skuldlausir Fáksfélagar kr. 2.500)

Breytingagjald eftir að skráningu lýkur – kr. 1.000

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link